Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Þing Golfsambands Íslands - Ný stjórn
Þing Golfsamband Íslands fór fram í Laugardalshöll 22. - 23. nóvember sl. Kosið var í stjórn GSÍ. Alls voru 11 einstaklingar sem gáfu kost á sér í stjórnina og 10 þeirra voru kjörnir. Haukur Örn Birgisson var einn í framboði í forsetaembættið og var hann því sjálfkjörinn. Alls voru 143 atkvæði greidd á golfþinginu í stjórnarkjörinu og voru 141 þeirra gild. Atkvæðin komu frá 39 golfklúbbum af alls 63. Þrír sem kjörnir voru í stjórn GSÍ fengu fullt hús atkvæða í kosningunni, eða 141 atkvæði.
Stjörnuflokkur á keppnum DSÍ
Á stjórnarfundi Dansíþróttasamband Íslands (DSÍ) þann 23. október sl. var ákveðið að bjóða fólki með fötlun velkomið í keppnir á vegum sambandsins. Búinn var til sérstakur keppnis/sýningar flokkur sem nefnist stjörnuflokkur þar sem fólk með fötlun getur komið og sýnt afraksturs dansæfinga sinna og fengið verðlaun fyrir. Eins er alltaf leyfilegt að keppa eða sýna í öðrum flokkum dansíþróttarinnar. Til þess að skrá sig á dansmót á vegum Dansíþróttasambands Íslands þurfa iðkendur að vera skráðir hjá dansíþróttafélögum.
Dagur í lífi Ágústu Eddu í dag
Í dag ætlar Ágústa Edda Björnsdóttir, hjólreiðakona og margfaldur meistari í greininni, að leyfa fólkinu í landinu að fá innsýn í sitt líf. Ágústa Edda mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland og taka upp sinn dag á Instagram Story.Opinn kynningarfundur Special Olympics
Mánudaginn 25. nóvember nk. fer fram opinn kynningarfundur á vegum Special Olympics á Íslandi á þeim tækifærum sem hafa skapast í gegnum verkefni Special Olympics. Verkefnin „Unified sport“ og „Unified schools“ byggja á blöndun og samfélagi án aðgreiningar. Fundurinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal á 3. hæð kl.17:00.
Nýr starfsmaður hjá ÍSÍ
Jafnt kynjahlutfall á Vetrarólympíuleikum ungmenna
Í dag eru 50 dagar þar til þriðju Vetrarólympíuleikar ungmenna (YOWG) verða settir í Lausanne í Sviss. Leikarnir standa yfir frá 9. - 22. janúar 2020. Keppnisdagskráin er klár, en á þeim 13 dögum sem keppnin fer fram eru 81 viðburður á dagskrá og er um að ræða átta keppnisstaði. 1880 íþróttamenn munu taka þátt og kynjahlutfall er jafnt. 940 konur og 940 karlar, munu etja kappi á leikunum. Verða þetta fyrstu vetrarleikarnir á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar með jafnt kynjahlutfall keppenda.
Dagur í lífi hjólreiðameistarans Ágústu Eddu
Ágústa Edda Björnsdóttir, hjólreiðakona og margfaldur meistari í greininni, ætlar að leyfa fólkinu í landinu að fá innsýn í sitt líf nk. föstudag, 22. nóvember. Ágústa Edda mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland og taka upp sinn dag á Instagram Story.
Lukkudýr Vetrarólympíuleika 2022
Nýlega tilkynnti skipulagsnefnd fyrir Vetrarólympíuleikana í Peking í Kína, sem fara fram í febrúar 2022, hvert lukkudýr leikanna er. Pandan Bing Dwen mun hvetja íþróttafólkið áfram á meðan á leikunum stendur. Bing þýðir Ís en merkir einnig hreinleika og styrk, orðið Dwen þýðir börn. Pandan er spendýr sem tilheyrir ætt bjarndýra og á heimkynni sín í Kína. Tegundin er auðþekkt á stórum svörtum skellum í kringum augun, yfir eyrum og um miðjan líkamann. Pandabjörninn nærist nær eingöngu á bambus, en étur líka hunang, egg, fisk, appelsínur og banana. Pandabjörninn lifði eitt sinn á láglendinu í Kína en maðurinn hefur, með landbúnaði, eyðileggingu skóglendis og stækkandi byggð, þvingað hann upp í fjöllin. Nú lifir pandabjörninn í fjalllendi og er í útrýmingarhættu af mannavöldum. Talið er að á bilinu 1.500-3.000 pöndur lifi í náttúrunni. Pandan er þekkt sem þjóðargersemi Kína og elskuð af fólki hvaðanæva úr heiminum, þá sérstaklega ungu fólki. Með því að velja pönduna sem lukkudýr Vetrarólympíuleikanna 2022 skapast vonandi umræða um stöðu pöndunnar í heiminum í dag. Við sama tækifæri var einnig tilkynnt hvert lukkudýr Paralympics (Ólympíumót fatlaðra) er. Shuey Rhon Rhon er lukkudýr Paralympics en það er lukt sem býður vini frá öllum heiminum velkomna. Nafnið merkir hlýju, vináttu, hugrekki og þrautseigju.
Keilari sýnir okkur hvernig dagur í sínu lífi er
Hvernig er dagur í lífi afreksíþróttamanns? Arnar Davíð Jónsson keilari ætlar að taka yfir Instagram Story á síðu ÍSÍ @isiiceland í dag og leyfa okkur hinum að fylgjast með degi í sínu lífi.
Þorsteinn tekur við sem framkvæmdastjóri UMSE
Þorsteinn Marinósson tekur á morgun við stöðu framkvæmdastjóra Ungmennasambands Eyjafjarðar (UMSE). Ásdís Sigurðardóttir hefur fengið tímabundið leyfi frá störfum. Steini, eins og hann er kallaður, er starfssemi sambandsins vel kunnugur, en hann starfaði sem framkvæmdastjóri UMSE frá árinu 2006 til ársins 2017.
Ný Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal
Fyrsta skóflustunga að nýrri íþróttamiðstöð í Úlfarsárdal var tekin þann 12. nóvember sl. Borgarstjóri Reykjavíkur, Dagur B. Eggertsson, og ungir iðkendur í Fram sáu um skóflustunguna. Framkvæmdir hefjast nú strax og verklok eru áætluð árið 2022. Fjölnota íþróttahús, áhorfendastúka fyrir aðalleikvang í knattspyrnu, minni íþróttasalir, félags- og þjónustuaðstaða fyrir starfsfólk, þjálfara og félagsmenn, búningsrými ásamt samkomusal og fundaraðstöðu eru hlutar af íþróttamiðstöðinni. Hún verður 7.3000 fermetrar á þremur hæðum með aðalinngang við sameiginlegt hverfistorg við Úlfarsbraut. Íþróttaaðstaðan nýja verður nýtt af skólum í hverfinu.
Norðurlandamót ungmenna í keilu
Keilusamband Íslands heldur þessa dagana Norðurlandamót ungmenna U23 í Keiluhöllinni Egilshöll. Til leiks eru mættir Finnar, Norðmenn og Svíar auk Íslendinganna. Mótið, sem er haldið annað hvert ár, er samstarfsverkefni Íslands, Finnland, Noregs og Svíþjóðar og skiptast löndin á að halda keppnina. Mótið stendur fram á laugardag og er keppt í ýmsum flokkum bæði pilta og stúlkna. Umrædd lönd eru sammála um að þessi viðburður sé einn sá mikilvægasti í starfsemi landanna því hann eflir tengsl þjóðanna og þarna fá ungmennin kjörið tækifæri til að kynnast öðrum keilurum frá nágrannalöndum og byggja upp vinatengsl sem hæglega geta varið í áratugi.