Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
18

Fréttasafn

2025

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst.

2024

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2023

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2022

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2021

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2020

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2019

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2018

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2017

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2016

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2015

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2014

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2013

Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.

2012

Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.

2011

Desember.

30.04.2018

Ársþing TKÍ

Ársþing TKÍÁrsþing TKÍ var haldið skv. lögum sambandsins þann 28. apríl 2018. Á þinginu kom fram að fjárhagsstaða sambandsins hefur sjaldan verið betri og undirstöður fyrir öflugt uppbyggingarstarf hafa verið lagðar með góðum rekstri undanfarin ár. Árangur keppenda á erlendri grundu fer batnandi ár frá ári og er það mat stjórnar og formanna félaganna að Ísland eigi raunhæfa möguleika á að senda keppendur á Ólympíuleika á næstu árum.
Nánar ...
30.04.2018

Heiðranir á ársþingi UÍA

Heiðranir á ársþingi UÍAÁrni Ólason, Hetti og Magnús Ásgrímsson, Leikni voru heiðraðir af ÍSÍ á ársþingi Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands 14. apríl sl. Þingið var haldið á Borgarfirði eystri en þar ólust þeir Árni og Magnús einmitt upp. Ingi Þór Ágústsson meðlimur í framkvæmdastjórn ÍSÍ afhenti þeim heiðursviðurkenningarnar á þinginu.
Nánar ...
30.04.2018

Hjólað í vinnuna 2018

Hjólað í vinnuna 2018Setningarhátíð Hjólað í vinnuna 2018 fer fram þann 2. maí og hefst kl. 8:30 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. ÍSÍ hvetur alla til að hjóla við og fá sér góða hressingu í tilefni dagsins.
Nánar ...
27.04.2018

110 ára afmæli Víkings

110 ára afmæli VíkingsAðalstjórn Knattspyrnufélagsins Víkings bauð til hátíðarsamkomu í tilefnis 110 ára afmælis félagsins, laugardaginn 21. apríl sl.
Nánar ...
27.04.2018

Starfsamt ársþing ÍBA

Starfsamt ársþing ÍBAÍþróttabandalag Akureyrar hélt ársþing sitt miðvikudaginn 25. apríl sl. 16 aðildarfélög áttu fulltrúa á þinginu og voru fulltrúarnir alls 54 af 106 mögulegum. Þingforseti var Hulda Sif Hermannsdóttir. Þingið var starfsamt og margt til umræðu í þingnefndum ekki síst í ljósi nýrrar stefnu ÍBA og Akureyrarbæjar í íþróttamálum. Tveir fræðslufyrirlestrar sem tengdust jafnréttismálum og #metoo umræðunni voru fluttir á þinginu, annars vegar fyrirlesturinn „Karlmenn í nýjum heimi“ sem fluttur var af Magnúsi Orra Schram hjá UN-Women
Nánar ...
26.04.2018

Hjólað í vinnuna 2. - 22. maí

Hjólað í vinnuna 2. - 22. maí Nú er vika í að Hjólað í vinnuna 2018 hefjist en keppnin stendur yfir frá 2. – 22. maí nk. Skráning er hafin og fer vel af stað, en hægt er að skrá sig til leiks á vefsíðu Hjólað í vinnuna hér.
Nánar ...
25.04.2018

68. Sambandsþing UÍA

68. Sambandsþing UÍA68. Sambandsþing UÍA var haldið í Fjarðarborg, Borgarfirði eystra, þann 14. apríl sl. Fimm umræðuhópar störfuðu á þinginu. Rætt var um samgöngumál, kynferðislega áreitni og ofbeldi í íþróttum, Landsmót UMFÍ og loks Sumarhátíð í tveimur hópum, annars vegar framtíðarsýn hátíðarinnar, hins vegar mönnun hennar með sjálfboðaliðum.
Nánar ...
25.04.2018

Lyftulausi dagurinn 25. apríl

Lyftulausi dagurinn 25. aprílÍ dag er lyftulausi dagurinn haldinn á alþjóðavísu í fjórða skipti. Alþjóðlega íþrótta- og menningar sambandið (International Sports and Culture Association) og herferðin „Nú hreyfum við okkur“ (Now We Move) reyna í sameiningu að fjölga þeim sem hreyfa sig reglulega um 100 milljónir fyrir árið 2020. Á deginum er fólk sem hreyfir sig ekki að staðaldri hvatt til þess að sleppa lyftunni og rúllustiganum og ganga þess í stað upp stigann.
Nánar ...
24.04.2018

Nýr framkvæmdastjóri hjá ÍBA

Nýr framkvæmdastjóri hjá ÍBAÍþróttabandalag Akureyrar hefur ráðið Helga Rúnar ​Bragason í fullt starf sem framkvæmdastjóra bandalagsins og hóf hann störf í marsmánuði sl. Helgi Rúnar tekur við starfinu af Þóru Leifsdóttur sem mun þó áfram starfa á skrifstofu bandalagsins.
Nánar ...
24.04.2018

Japanskur blaðamaður í heimsókn

Japanskur blaðamaður í heimsóknNæstu Ólympíuleikar munu fara fram í Tókýó í Japan árið 2020. Japanir eru á fullu að undirbúa leikana og leggja þeir mikið upp úr umhverfisvitund og sjálfbærni í tengslum við allt sem viðkemur leikunum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ólympíuleikarnir eru haldnir í Japan, því árið 1964 fóru leikarnir fram í Tókýó höfuðborg Japan.
Nánar ...
20.04.2018

Skráning er hafin í Hjólað í vinnuna 2018

Skráning er hafin í Hjólað í vinnuna 2018Opnað hefur verið fyrir skráningu í Hjólað í vinnuna 2018 en keppnin hefst þann 2. maí nk. og stendur yfir til 22. maí. Liðsmenn og liðsstjórar geta því hafið skráningar á sér og sínum liðum núna á vefsíðu Hjólað í vinnuna, www.hjoladivinnuna.is.
Nánar ...