Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Samningur ÍSÍ við Icelandair vegna innanlandsflugs

Til þess að fá inneignarkóða þarf að senda póst á mottaka@isi.is og tilgreina fyrir hvaða félag og hve marga leggi er verið að óska eftir. Því næst er farið á vefsíðu Icelandair og flug bókað með inneignarkóðann við hönd.
 

ÍSÍ og Icelandair hafa gert með sér sérstakan samning um afsláttarkjör á innanlandsflugi fyrir íþróttahreyfinguna. Samningurinn gildir til 31. desember 2025. Samstarf ÍSÍ og Icelandair, áður Air Iceland Connect og Flugfélag Íslands, hefur verið langt og farsælt. Þátttaka í íþróttastarfi á Íslandi felur í sér mikil og kostnaðarsöm ferðalög og mikilvægt er að búa við öruggar og reglubundnar flugsamgöngur á milli landshluta.

Hópabókanir fara í gegnum Hópadeild Icelandair og eru ÍSÍ-hópafargjöldin tíunduð í samningnum sem finna má hér fyrir neðan.

Einstaklingsbókanir fara alfarið í gegnum bókunarvél á vefsíðu Icelandair. Búið er að leggja af svokölluð ÍSÍ-fargjöld fyrir einstaklinga en í staðinn er notast við inneignarkóða sem fela í sér 2.700 króna inneign. Einungis er leyfilegt að nota eitt inneignanúmer pr. fluglegg. Hægt er að nota inneignina upp í fargjöld í öllum verðflokkum sem í boði eru á bókunarsíðu Icelandair. Þar sem afslátturinn er föst upphæð þá er hann hlutfallslega hagstæðastur á lægstu fargjöldunum. Góður fyrirvari á bókun getur því borgað sig. Inneignarkóðana þarf að nálgast fyrirfram á skrifstofu ÍSÍ á hefðbundnum skrifstofutíma og því er hreyfingin hvött til að setja sig í samband við ÍSÍ í góðum tíma fyrir bókun. Til þess að fá inneignarkóða þarf að senda póst á mottaka@isi.is

Eins og áður er samningur ÍSÍ og Icelandair byggður á gagnkvæmu trausti og virðingu á milli aðila. Sambandsaðilar eru hvattir til að kynna sér samninginn vel og hafa tímann fyrir sér við bókanir, ef mögulegt er. Það eykur líkurnar á því að menn nái að bóka ferðirnar á hagstæðum kjörum.

Góða ferð!