Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Norðurlandamót ungmenna í keilu

14.11.2019

Keilusamband Íslands heldur þessa dagana Norðurlandamót ungmenna U23 í Keiluhöllinni Egilshöll. Til leiks eru mættir Finnar, Norðmenn og Svíar auk Íslendinganna. Mótið, sem er haldið annað hvert ár, er samstarfsverkefni Íslands, Finnland, Noregs og Svíþjóðar og skiptast löndin á að halda keppnina. Mótið stendur fram á laugardag og er keppt í ýmsum flokkum bæði pilta og stúlkna. Umrædd lönd eru sammála um að þessi viðburður sé einn sá mikilvægasti í starfsemi landanna því hann eflir tengsl þjóðanna og þarna fá ungmennin kjörið tækifæri til að kynnast öðrum keilurum frá nágrannalöndum og byggja upp vinatengsl sem hæglega geta varið í áratugi.

Hægt er að sjá dagskrá mótsins á vefsíðu mótsins hér.

Streymt er frá mótinu á Fésbókarsíðu Keilusambandsins hér.