Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Norræna skólahlaupið er enn á ný á dagskrá grunnskóla
Fjölbreytt efni á heimasíðunni
Hjólum í skólann - framhaldsskólakeppni
Hjólum í skólann er nýtt verkefni á vegum almenningsíþróttasviðs ÍSÍ þar sem framhaldsskólar landsins keppa sín á milli um að nýta virkan ferðamáta sem oftast í og úr skóla.
Hjólum í skólann fer fram í fyrsta skipti dagana 16. - 20. september 2013 í tengslum við Evrópsku samgönguvikuna, en stefnt er að því að keppnin verði árviss viðburður á samgönguviku.
Markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hafkvæmum samgöngumáta.
Hjólum í skólann er samstarfsverkefni ÍSÍ, Hjólafærni á Íslandi, Embætti Landlæknis, Reykjavíkurborgar, Samgöngustofu og Sambands Íslenskra framhaldsskólanema. Samstarfshópur varð til um verkefnið af frumkvæði Hjólafærni á ÍslandiSumarfjarnámi 1. stigs lokið með frábærri þátttöku!
Göngum í skólann hefst 4. september
Heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ
Heimsmeistara fagnað
Íslensku keppendurnir sem tóku þátt í Heimsmeistaramóti fatlaðra íþróttamanna í Lyon í Frakklandi eru komin aftur til landsins. Sveinn Áki Lúðvíksson formaður Íþróttasambands fatlaðra og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ tóku á móti íslenska hópnum í Leifsstöð á sunnudag og færðu þeim blóm.ÍSÍ fagnar sérstöku framlagi til Afrekssjóðs ÍSÍ
Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun að veita Afrekssjóði ÍSÍ sérstakt framlag í formi tveggja milljón króna styrks árlega fram að Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016 til að styðja við Anítu Hinriksdóttur afreksíþróttakonu í frjálsíþróttum og verkefni Frjálsíþróttasambands Íslands.   
ÍSÍ fagnar framlaginu sem á örugglega eftir að nýtast vel í undirbúningi fyrir helstu verkefni sem framundan eru hjá Anítu á næstu árum.  Anítu fagnað við heimkomu
Aníta Hinriksdóttir, Heimsmeistari U-18 og Evrópumeistari U-20 í 800 m hlaupi, kom til landsins í gærkvöldi eftir að hafa unnið til þessarra tveggja titla í vikunni. Fjölskylda og vinir Anítu tóku á móti henni í Keflavík en þar voru einnig mættir Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Benóný Jónsson varaformaður Frjálsíþróttasambands Íslands til að færa henni blóm og hamingjuóskir í tilefni þessa frábæra árangurs.  Meðfylgjandi mynd er tekin við það tækifæri af Benóný, Anítu og Lárusi.
Stjórn og starfsfólk ÍSÍ óskar Anítu og fjölskyldu, Gunnari Páli þjálfara hennar og Frjálsíþróttasambandi Íslands hjartanlega til hamingju með afrekin.Einstaklingskeppni Lífshlaupsins
Handknattleiksdeild Fjölnis fyrirmyndardeild ÍSÍ
Þann 30 júní síðastliðinn fékk handknattleiksdeild Umf. Fjölnis í Grafarvogi afhenta viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndardeild.  Deildin hefur mótað sér stefnu og uppfyllir nú þau skilyrði sem sett eru af hálfu ÍSÍ.  Það var Sigríður Jónsdóttir formaður Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sem afhenti forystumönnum deildarinnar viðurkenninguna að Dalhúsum í Grafarvogi að viðstöddu fjölmenni.  Viðurkenningin er veitt til fjögurra ára í senn og þarf þá að sækja um endurnýjun til ÍSÍ.  Á myndinni eru þau Sigríður Jónsdóttir frá ÍSÍ og Kristján Gaukur Kristjánsson formaður handknattleiksdeildar Fjölnis ásamt hluta af hópi iðkenda deildarinnar.