Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

15.02.2013

Lyfjaeftirlitsnámskeið

Líkt og undanfarin ár er samvinna milli lyfjafræðinema við Háskóla Íslands og lyfjaeftirlits ÍSÍ. Nemendur í lyfjafræði við háskólann sitja námskeið á vegum lyfjaeftirlitsnefndar og halda í framhaldinu fræðslufyrirlestur fyrir nemendur framhaldsskóla.
Nánar ...
15.02.2013

Lyfjaprófunarhópur 2013

Samkvæmt Alþjóða lyfjareglunum ber þeim sem fara með lyfjaeftirlit meðal íþróttamanna að stofna skráðan lyfjaprófunarhóp. Í hópnum eiga að vera fremstu íþróttamenn hvers lands. Við val á einstaklingum er tekið mið af stöðu viðkomandi á heimslista og þátttöku á stórum Alþjóðlegum mótum. Meðal þeirra upplýsinga sem íþróttamennirnir þurfa að skila er keppnisáætlun fyrir tímabilið auk upplýsinga um hvar og hvenær æft er. Lyfjaeftirlit ÍSÍ hefur nú birt hverjir tilheyra skráðum lyfjaprófunarhópi árið 2013.
Nánar ...
15.02.2013

Nýtt þátttökumet

Nýtt þátttökumetNú hafa 462 vinnustaðir skráð 11.840 liðsmenn til leiks í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins sem er nýtt þátttökumet. Í grunnskólakeppninni hafa 47 skólar skráð 7.600 nemendur til leiks. En er hægt að skrá vinnustaði/skóla, lið/bekki og liðsmenn til leiks á lifshlaupid.is einnig er hægt að fylgjast með stöðunni á vefsíðunni. Frábær þátttaka og mikil stemning er hjá þátttakendum frá Arion banka. 456 starfsmenn eru þátttakendur í Lífshlaupinu af 981. Hér á síðunni eru myndir af 2 af 59 liðum sem eru skráð til leiks frá bankanum.
Nánar ...
13.02.2013

Námskeið ungra þátttakenda í Ólympíu

Námskeið ungra þátttakenda í ÓlympíuÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 11. til 25. júní n.k. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið ólympíu arfleifðin auk þess sem fjallað er um styrkingu ólympíuhugsjónarinnar með nýjum kynslóðum barna og ungmenna.
Nánar ...
12.02.2013

Kynningum á Ánægjuvoginni að ljúka

Kynningum á Ánægjuvoginni að ljúkaKynningum á Ánægjuvoginni lýkur á fimmtudag með heimsókn til Egilsstaða. Búið er að kynna niðurstöður í Reykjavík, Blönduósi, Akureyri, Ísafirði, Selfossi og í Borgarnesi.
Nánar ...
12.02.2013

Skráning í Lífshlaupið

Skráning í LífshlaupiðGóð skráning er í Lífshlaupið. Nú hafa 46 skólar skráð 7055 nemendur til leiks í grunnskólakeppninni. Í vinnustaðakeppninni hafa 449 vinnustaðir skráð 10.443 liðsmenn til leiks. Enn er hægt að skrá vinnustaði/skóla, lið/bekki og liðsmenn til leiks. Nánari upplýsingar og skráningarleiðbeiningar er hægt að nálgast inn á vef verkefnisins www.lifshlaupid.is. Á meðfylgjandi mynd er starfsfólk og börn frá Leikskólanum Álfaheiði sem unnu sér inn Ávaxtakörfu frá ávaxtasérfræðingunum í Ávaxtabílnum með því að taka þátt í Facebookleik Lífshlaupsins.
Nánar ...
07.02.2013

Eitt ár í Vetrarólympíuleikana í Sochi

Eitt ár í Vetrarólympíuleikana í SochiÍ dag er aðeins eitt ár þar til Vetrarólympíuleikarnir í Sochi í Rússlandi hefjast. Í tilefni þessara tímamóta verður mikil hátíð í Sochi í kvöld. Meðal gesta verða Vladimir Putin forseti Rússlands og Jaques Rogge forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar. Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ og Andri Stefánsson sviðsstjóri Afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ eru stödd í Sochi á undirbúningsfundi og segja aðstæður líta vel út. Á myndinni eru þau fyrir framan keppnissvæði alpagreina.
Nánar ...
06.02.2013

Opnunarhátíð Lífshlaupsins

Opnunarhátíð LífshlaupsinsLífshlaupið var sett í sjötta sinn í morgun í Flataskóla í Garðabæ. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Geir Gunnlaugsson, landlæknir, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Ólöf Sigurðardóttir skólastjóri Flataskóla fluttu
Nánar ...
05.02.2013

Kynning á Fyrirmyndarfélagi ÍSÍ á Húsavík

Kynning á Fyrirmyndarfélagi ÍSÍ á HúsavíkÍSÍ var með kynningu á Fyrirmyndarmyndarfélagi ÍSÍ fyrir Íþróttafélagið Völsung á Húsavík fyrir skömmu. Aðalstjórn Völsungs stefnir að því að allar deildir félagsins verði fyrirmyndardeildir ÍSÍ og félagið þar með í heild fyrirmyndarfélag. Í ljós kom að félagið uppfyllir nú þegar mörg þeirra skilyrða sem sett eru og því verður vinnan minni en ella við að ná þessu takmarki.
Nánar ...
05.02.2013

Opnunarhátíð Lífshlaupsins

Opnunarhátíð Lífshlaupsins fer fram í Flataskóla í Garðabæ, á morgun, miðvikudaginn 6. febrúar klukkan 11:00. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Geir Gunnlaugsson, landlæknir, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri og Ólöf Sigurðardóttir, skólastjóri munu flytja stutt hvatningarávörp og taka þátt í léttri þraut í anda skólahreysti ásamt nemendum Flataskóla. Fjórir þátttakendur í einstaklingskeppni Lífshlaupsins, sem hreyfðu sig í 335 daga samfellt, fá afhent platínumerki Lífshlaupsins.
Nánar ...
04.02.2013

Kynning á fyrirmyndarfélagi ÍSÍ á Ólafsfirði

ÍSÍ var með kynningu á Fyrirmyndarfélagi ÍSÍ fyrir UÍF á Ólafsfirði fyrir skömmu. Fyrir liggur samþykkt frá síðasta ársþingi UÍF þess efnis að öll aðildarfélög sambandsins verði orðin fyrirmyndarfélög ÍSÍ árið 2015. Framundan er vinna félaganna við að uppfylla þau skilyrði sem sett eru af hálfu ÍSÍ.
Nánar ...