Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Hádegisfundur ÍSÍ og HÍ - Afreksíþróttir barna og unglinga - hvað ræður efniviður eða líkamlegur þroski?

15.02.2013

Mánudaginn 18. febrúar munu ÍSÍ og Íþrótta- og heilsufræðibraut HÍ standa í sameiningu fyrir hádegisfundi í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal og hefst fundurinn kl.12:10.  Þar mun Tomas Peterson prófessor í  íþróttafélagsfræði við Háskólann í Malmö flytja erindi um rannsóknir sínar á getu- og aldurstengdum árangri unglinga, með tilliti til efniviðar og aldurs- og fæðingadaga þeirra. Tomas hefur gert margvíslegar rannsóknir í samvinnu við sænska knattspyrnusambandið, sveitafélög og skólayfirvöld.

Hann hefur m.a. sýnt fram á að þjálfarar sem telja sig hafa fundið mikið efni á ákveðnum tímapunkti fundu í raun bráðþroska ungling.  Hann mun svara fyrirspurnum úr sal varðandi öll álitamál tengd fyrirlestrinum og tengdum málum s.s. getuskiptingu, aldursskiptingu ofl.   Skráning fer fram á skraning@isi.is

Fyrirlesturinn fer fram á ensku, verður tekinn upp og verður aðgengilegur á netinu. Smelltu á tengilinn hérna fyrir neðan í kringum 12:10.  Vinsamlegast athugið að þegar þið tengist þá eruð þið beðin um að samþykkja lítið forrit sem þið gerið með því að ýta á run. Í session password væri gott ef þið skrifuðuð nafn ykkar og hvaða sambandsaðila/félag þið starfið fyrir.

 

To participate in the session please click here:

https://get.netviewer.com/meet/join.php?sinr=706495&sipw=nv64

You may also start the Netviewer program directly. Please enter the following data when prompted:

Session number: 706495

Session password:

 

 

 

Aðgangur er ókeypis.