Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
21

19.09.2024

ÍA áfram Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

ÍA áfram Fyrirmyndarhérað ÍSÍÍþróttabandalag Akraness (ÍA) fékk endurnýjun viðurkenningar bandalagsins sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á formannafundi ÍA á Akranesi miðvikudaginn 18. september síðastliðinn.
Nánar ...
18.09.2024

Nikolay Mateev endurkjörinn í stjórn EFC

Nikolay Mateev endurkjörinn í stjórn EFCKosningaþing Evrópska skylmingasambandsins (EFC) var haldið 14.- 15. september sl. í Búdapest, í Ungverjalandi. Nikolay Mateev, núverandi formaður Skylmingasamband Íslands, var þar en hann var fyrst kjörinn í framkvæmdastjórn Evrópska skylmingasambandsins (EFC) árið 2009 og hefur setið í stjórn sambandsins óslitið síðan.
Nánar ...
18.09.2024

Sjö bjóða sig fram til forseta IOC

Sjö bjóða sig fram til forseta IOCKosið verður um nýjan forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) á næsta ári, nánar til tekið á ársþingi sem haldið verður 18. – 21. mars í Grikklandi. Forsetinn er kjörinn af meðlimum þingsins.
Nánar ...
17.09.2024

Norrænn fundur um fyrirtækjaíþróttir

Norrænn fundur um fyrirtækjaíþróttir Norrænir fulltrúar þeirra sambanda sem sjá um fyrirtækjaíþróttir funduðu saman í Seinajoki í Finnlandi 12. – 15. september sl. Á Norðurlöndunum eru sér íþróttasambönd um fyrirtækjaíþróttir en á Íslandi falla fyrirtækjaíþróttir undir Fræðslu- og almenningsíþróttasvið Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Verkefni hjá ÍSÍ sem hafa höfðað sérstaklega til fyrirtækja eru Lífshlaupið, sem í gangi er í febrúar, og Hjólað í vinnuna, sem er í maí.
Nánar ...
16.09.2024

Göngum í skólann fer vel af stað!

Göngum í skólann fer vel af stað!Verkefnið Göngum í skólann fer afar vel af stað en það hófst miðvikudaginn 4. september og mun það standa yfir til miðvikudagsins 2. október, sem er alþjóðlegi Göngum í skólann- dagurinn.
Nánar ...
12.09.2024

Með harðfisk og hangikjöt að heiman. Undirbúningur og þátttaka Íslands á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948

Með harðfisk og hangikjöt að heiman. Undirbúningur og þátttaka Íslands á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948Í gær, miðvikudaginn 11. september, hélt Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður hjá RÚV og sagnfræðingur, útgáfuteiti en hann hann gaf nýverið út bókina Með harðfisk og hangikjöt að heiman. Undirbúningur og þátttaka Íslands á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948. Bókin byggir að stofninum til á BA-ritgerð Þorkels úr sagnfræði við Háskóla Íslands en það er Sögufélagið sem gefur bókina út. Fjölmenni var á svæðinu og mættu margir frá íþróttahreyfingunni, þar á meðal Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ.
Nánar ...
10.09.2024

HAUSTFJARNÁM ÍSÍ hefst á mánudag!

HAUSTFJARNÁM ÍSÍ hefst á mánudag!Haustfjarnám á öllum stigum þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 16. september næstkomandi. Síðasti möguleiki til skráningar er 16. september. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nánar ...
09.09.2024

Fundað um fræðslu og almenningsíþróttir á Akureyri

Fundað um fræðslu og almenningsíþróttir á AkureyriÍ tengslum við setningu Göngum í skólann í Brekkuskóla á Akureyri á miðvikudaginn 4. september og Ólympíuhlaups ÍSÍ sem haldið var í Borgarhólsskóla á Húsavík á fimmtudag 5. september, funduðu nokkrir starfsmenn ÍSÍ ásamt starfsmönnum frá Akureyrarbæ, Íþróttabandalagi Akureyrar (ÍBA) og svæðisstöð Norðurlands eystra, síðdegis miðvikudaginn, 4. september.
Nánar ...