Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Valdís í 7. sæti í Suður-Afríku
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur, stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í Tókýó í júlí nk. Valdís keppir út um allan heim um þessar mundir og nú síðast í Suður-Afríku sl. helgi þar sem hún náði sínum besta árangri á árinu. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni og var Valdís í baráttu um sigurinn en endaði í 7.-13. sæti mótsins á tveimur höggum undir pari. Alice Hewson frá Englandi sigraði mótið á fimm höggum undir pari. Er þetta í fjórða skipti sem Valdís Þóra er á meðal tíu efstu kylfinga á Evrópumótaröðinni.
Guðlaug Edda nælir í dýrmæt Ólympíustig
Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarmeistari, stefnir á að taka þátt í ólympískri þríþraut á Ólympíuleikunum í Tókýó 2020. Í ólympískri þríþraut eru syntir 1500 metrar, 40 kílómetrar hjólaðir og 10 kílómetrar hlaupnir.
Ísland á iði í 28 daga - 30 mínútur á dag
Ísland á iði í 28 daga - 30 mínútur á dag er facebooksíða þar sem ÍSÍ mun setja inn fjölbreytta hreyfingu, fróðleik, myndir, myndbönd og almenna skemmtun sem mun nýtast öllum þeim sem áhuga hafa í þær 4 vikur sem samkomubannið er við líði.
Nú er tíminn til að skrá hreyfingu sína
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur fólk til að huga vel að almennri hreyfingu í þeim aðstæðum sem skapast hafa vegna Covid-19. ÍSÍ bendir á verkefnið Lífshlaupið sem er í gangi allt árið, en það er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa og allra landsmanna.
Íþróttastarfið í samkomubanni
Í samskiptum ÍSÍ við landlækni, sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur komið fram að vegna mikill anna við að koma af stað starfi í leik- og grunnskólum landsins, í samræmi við þær reglur um nú gilda, hefur ekki náðst að ljúka undirbúningi fyrir þátttöku leik- og grunnskólabarna í íþróttastarfi. Því má gera ráð fyrir því að röskun verði á íþróttastarfi næstu daga þangað til íþróttafélög, skólasamfélagið og sveitarfélög hafa komið sér niður á lausnir til að halda úti starfi með þeim takmörkunum sem munu gilda næstu fjórar vikurnar. Njótum þess að hjóla
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur fólk til að huga vel að almennri hreyfingu. Þeir sem hjóla reglulega eru hraustari, veikjast sjaldnar, hættir síður við þunglyndi og hafa þrek á við sér yngra fólk skv. niðurstöðum rannsókna.
Íþróttahreyfingin og COVID-19
Framkvæmdastjórar ÍSÍ og UMFÍ funduðu Páli Magnússyni ráðuneytisstjóra mennta- og menningarmálaráðuneytis og Óskari Þór Ármannssyni sérfræðingi í ráðuneytinu í gegnum fjarfundabúnað síðdegis í dag í kjölfar tveggja auglýsinga sem yfirvöld birtu í dag.Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga
Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands ársins 2019. Til úthlutunar að þessu sinni voru 127 milljónir króna. UMSB Fyrirmyndarhérað ÍSÍ
Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á Sambandsþingi UMSB sem haldið var að Logalandi í Reykholtsdal fimmtudaginn 12. mars síðastliðinn. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti Braga Þór Svavarssyni Sambandsstjóra viðurkenninguna. UMSB er sjöunda íþróttahéraðið sem hlýtur þessa viðurkenningu frá ÍSÍ.
Gullmerki ÍSÍ veitt á 98. þingi UMSB
98. sambandsþing Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) var haldið miðvikudaginn 12. mars sl. í Logalandi í Reykholtsdal. Ungmennafélagið Reykdælir sáu um framkvæmd þingsins og tóku vel á móti þingfulltrúum með góðum veitingum. Dagskrá þingsins var hefðbundin og í samræmi við lög sambandsins. Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri. Ávarpaði hann fundarmenn ásamt því að veita Gullmerki ÍSÍ tveimur aðilum úr íþróttahreyfingunni, fyrir frábært starf í þágu hreyfingarinnar. Það voru þeir Sigurður Guðmundsson og Jón G. Guðbjartsson.
ÍSÍ hvetur fólk til að hreyfa sig
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur fólk til að að huga vel að almennri hreyfingu í þeim aðstæðum sem skapast hafa vegna Covid-19. Rannsóknir staðfesta að hreyfing er einn af lykiláhrifaþáttum heilbrigðis á öllum æviskeiðum. Þeir sem hreyfa sig eru líklegri til að vera heilsuhraustari og líða betur andlega, líkamlega og félagslega. Hægt er að hreyfa sig úti í náttúrunni án náinnar snertingar við annað fólk. Dagleg hreyfing fullorðins fólks ætti að vera a.m.k. 30 mínútur á dag skv. ráðleggingum frá Embætti landlæknis og börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag. Fullorðnir eru mikilvæg fyrirmynd sem getur haft mikið að segja um hversu mikið börn og ungt fólk hreyfir sig.
Fundur ÍSÍ með fulltrúum sérsambanda vegna Covid-19
.jpg?proc=NewsListImage)