Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

03.10.2019

Íþróttir eru sigurför fyrir sjálfsmyndina

Íþróttir eru sigurför fyrir sjálfsmyndina„Íþróttaiðkun sonar okkar hefur ekki bara haft jákvæð áhrif á hann sjálfan heldur á alla fjölskylduna. Hann er líka hamingjusamari. Hann kynntist samherjum sínum í lífinu og þjálfurum sem eru orðnir þátttakendur í lífi hans og okkar,“ segir fjölmiðlakonan Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Sonur Jóhönnu er Hjalti Geir Guðmundsson, sundmaður úr íþróttafélaginu Öspinni og einn fjögurra íslenskra sundkappa sem valdir voru til að keppa fyrir hönd Íslands á heimsleikum Special Olympics í Abú Dabí í mars á þessu ári. Jóhanna Vigdís verður með erindi á ráðstefnu Sýnum karakter á laugardag. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Jóhanna Vigdís mun þar fjalla um íþróttir og keppni sem sigurför fyrir sjálfsmyndina. En hvað á hún við með því?
Nánar ...
02.10.2019

Forvarnardagurinn 2019

Forvarnardagurinn 2019Forvarnardagurinn er í dag og er nú haldinn í fjórtánda sinn. Í tengslum við daginn er vakin athygli á mikilvægum þáttum í forvarnarstarfi sem snúa að ungu fólki. Í ár eru viðfangsefni verkefnisins aukin notk­un rafretta og orku­drykkja, auk þess sem áhersla er lögð á mik­il­vægi svefns. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti í því sem næst öllum grunnskólum landsins og er beint sérstaklega að unglingum í 9. bekk en einnig taka fjölmargir framhaldsskólar þátt í verkefninu.
Nánar ...
01.10.2019

Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter?

Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter?Laugardaginn 5. október nk. fer fjórða Sýnum karakter ráðstefna Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) fram. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Dagskrá er fjölbreytt og áhugaverð. Flutt verða erindi sem tengjast breyttu keppnisfyrirkomulagi og því hvernig hægt er að virkja og byggja upp karakter hjá börnum og ungmennum.
Nánar ...
01.10.2019

Vinnustofan Keppni með tilgang

Vinnustofan Keppni með tilgangDagana 3. og 4. október á 2. hæð í nýju Laugardalshöllinni fer fram vinnustofa ætluð þeim sem sjá um fræðslu-og/eða mótamál í íþróttahreyfingunni. Yfirskrift vinnustofunnar er Meaningful Competition sem í lauslegri þýðingu gæti verið „Keppni með tilgang“ og lítur að keppni hjá börnum og ungmennum.
Nánar ...
30.09.2019

Íþróttaviku Evrópu lýkur í dag

Íþróttaviku Evrópu lýkur í dagÍþróttaviku Evrópu hefur staðið yfir í eina viku og lýkur í dag. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.
Nánar ...
30.09.2019

Forvarnardagurinn 2019 - Kynningarfundur

Forvarnardagurinn 2019 - KynningarfundurMiðvikudaginn 2. október verður Forvarnardagurinn 2019 haldinn í flestum grunn- og framhaldsskólum landsins. Forvarnardagurinn er haldinn á hverju hausti og þá er sjónum sérstaklega beint að unglingum í 9. bekk og á fyrsta ári í framhaldsskóla.
Nánar ...
30.09.2019

Þjálfarastyrkir ÍSÍ

Þjálfarastyrkir ÍSÍStjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.
Nánar ...
30.09.2019

Ráðstefna - Sýnum karakter

Ráðstefna - Sýnum karakterErt þú að vinna innan íþróttahreyfingarinnar eða ungmennafélagshreyfingarinnar ? Þá er næsta ráðstefna Sýnum karakter eitthvað sem þú gætir haft áhuga á. Laugardaginn 5. október fer fjórða Sýnum karakter ráðstefna ÍSÍ og UMFÍ fram. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Hvernig getur keppnisfyrirkomulag mótað eða eyðilagt karakter? Dagskrá er fjölbreytt og áhugaverð. Flutt verða erindi sem tengjast breyttu keppnisfyrirkomulagi og því hvernig hægt er að virkja og byggja upp karakter hjá börnum og ungmennum.
Nánar ...
27.09.2019

Fræðslufyrirlestrar á Akureyri

Fræðslufyrirlestrar á AkureyriFræðslufyrirlestrar um jákvæð samskipti voru haldnir í Háskólanum á Akureyri fimmtudaginn 26. september síðastliðinn. Um var að ræða þrjá fyrirlestra, fyrir iðkendur íþrótta, fyrir foreldra og fyrir þjálfara. Það var Pálmar Ragnarsson sem var með fyrirlestrana við mjög góðar undirtektir þeirra sem þá sóttu. Pálmar hefur getið sér gott orð fyrir frammistöðu sína í þessum fræðum, notkun jákvæðra samskipta við íþróttaþjálfun. Mjög góð þátttaka var á fyrirlestrunum, samtals voru um 340 manns sem mættu og þar af 220 iðkendur íþrótta. Fræðslufyrirlestrarnir eru samstarf ÍSÍ, ÍBA, Akureyrarbæjar og Háskólans á Akureyri og var aðgangur ókeypis.
Nánar ...
27.09.2019

Stjórnendanámskeið á Þórshöfn

Stjórnendanámskeið á ÞórshöfnÍSÍ í samstarfi við Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ) hélt námskeið um stjórnun á Þórshöfn miðvikudaginn 25. september síðastliðinn. Námskeiðið var jafnt fyrir stjórnendur félaga, fólk í ráðum og nefndum og þjálfara. Farið var yfir ýmsar upplýsingar sem máli skipta við fyrrgreind störf og það er von ÍSÍ og HSÞ að þeir sem sóttu námskeiðið séu einhvers vísari og þar með öruggari í starfi. Seinna námskeiðið innan HSÞ verður á Húsavík í október. Fyrirlesari á námskeiðinu var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.
Nánar ...