Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
ÍSÍ úthlutar tæpum 300 m.kr. í afreksstarf sérsambanda
Á Fjárlögum ríkisins vegna ársins 2025 voru 637 m.kr. veittar til innleiðingar á nýju fyrirkomulagi afreksstarfs og byggir sú fjárveiting á tillögum sem starfshópur skilaði af sér á vormánuðum 2024, en lesa má um þær tillögur í skýrslu starfshópsins.Kynning á hjólastólakörfubolta í Kringlunni
Mikill fjöldi fólks fylgdist með kynningu á hjólastólakörfubolta í Kringlunni á laugardag. Tilefnið var tvíþætt, æfingar eru hafnar í hjólastólakörfubolta fyrir börn með fötlun hjá Fjölni og ÍR og svo er körfubolti ein af fimm greinum sem boðið verður upp á þegar Íslandsleikarnir fara fram á Selfossi í lok mars.Flott ungmenn sem eiga framtíðina fyrir sér!
Líney Rut Halldórsdóttir ráðgjafi ÍSÍ og fyrrum framkvæmdastjóri sambandsins var í stóru hlutverki á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar. Hún er formaður EOC EYOF Commission sem hefur eftirlit með skipulagi og framkvæmd bæði Vetrar- og Sumarólympíuhátíða Evrópuæskunnar. Síðustu keppnisgreinum íslenska hópsins á EYOWF lokið
Síðustu keppnisgreinar Vetrarólympíuhátíðarinnar Evrópuæskunnar fóru fram í dag. Veðrið var stillt, hiti rétt yfir frostmarki og sól. Í alpagreinum var keppt í samhliða stórsvigi liða þar sem fulltrúar Íslands voru Erla Karítas Blöndahl Gunnlaugsdóttir, Sara Mjöll Fjalarsdóttir, Arnór Alex Arnórsdon og Andri Kári Unnarsson.Næstsíðasti keppnisdagur á EYOWF
Frábært veður var á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar í dag, sól og aðeins heitara en hefur verið upp á síðkastið. Keppnisgrein dagsins var sprettganga, bæði í stúlkna- og drengjaflokki.Halla Björg dómari í listskautum á EYOWF
Halla Björg Sigurþórsdóttir dómari í listskautum er meðal dómara á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Georgíu þessa dagana.Svig stúlkna og keppni í risastökki á snjóbretti
Tvær keppnisgreinar fóru fram í Bakuriani. Fyrri greinin var svig stúlkna þar sem Ísland átti fjóra fulltrúa, þær Erlu Karítas Blöndahl Gunnlaugsdóttur, Anítu Mist Fjalarsdóttur, Söru Mjöll Jóhannsdóttur og Kristínu Sædísi Sigurðardóttur. Ráðherra í heimsókn hjá ÍSÍ
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, kom í sína fyrstu formlegu heimsókn í höfuðstöðvar ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í morgun.Sædís Heba hefur lokið keppni á EYOWF
Í Batumi keppti Sædís Heba Guðmundsdóttir í dag í frjálsu prógrammi í listskautum og náði 22. sæti af 30 keppendum. Þetta var hennar seinni keppnisgrein og hefur hún því nú lokið keppni á hátíðinni. Í samanlögðum keppnisgreinum, í stuttu (36.58) og frjálsu prógrami (66.33) endar Sædís með 102.91 stig í keppni listskauta og hafnar í 23.sætinu á hátíðinni af 30 keppendum. Krefjandi aðstæður í svigi á EYOWF í dag
Keppni er lokið í svigi drengja á Vetrarólympíuhátið Evrópuæskunnar, þar sem 92 keppendur voru á ráslista. Keppendur íslenska hópsins voru þeir Andri Kári Unnarsson, Arnór Alex Arnórsson, Ólafur Kristinn Sveinsson og Eyvindur Halldórsson Warén. Aðstæður í dag voru mjög krefjandi. Enginn af strákunum náði að klára fyrri ferð, en þeir gáfu allt sitt í þetta og eru reynslunni ríkari.Hjólastólakörfuknattleikur í Kringlunni 15. febrúar
Kynning verður á verkefninu „Allir með” í Kringlunni laugardaginn 15. febrúar á milli klukkan 14:00 - 15:00. Sérstök áhersla verður á kynningu á hjólastólakörfubolta sem er að fara af stað fyrir börn með sérþarfir. Frábærar aðstæður og flottur hópur!
Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ var viðstaddur setningu Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar í Bakuriani í Georgíu 8. febrúar sl. Hann fylgdist einnig með fyrstu keppnisdögum hátíðarinnar og þátttöku íslensku keppendanna.