Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Vorfjarnám 3. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ
Vorfjarnám 3. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 26. feb. nk. og tekur það fimm vikur. Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Það er sjálfstætt framhald náms á 2. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ eða sambærilegs náms. Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið föstudaginn 23. feb. Þátttökugjald er kr. 40.000.- Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa 2. stigi alm. hluta eða sambærilegu námi. Einnig þurfa þátttakendur að hafa 12 mánaða starfsreynslu sem þjálfarar og að hafa gilt skyndihjálparnámskeið. Möguleiki er að taka skyndihjálparnámskeiðið á meðan á námi stendur og fá fyrri þjálfunarreynslu metna.
Síðasti skráningardagur í þjálfaramenntun á morgun
Vorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 12. febrúar nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn innifalin.
PyeongChang 2018 - Móttökuhátíð í Ólympíuþorpinu
Í dag var íslenski hópurinn boðinn velkominn í Ólympíuþorpið í PyeongChang. Sérstakar móttökuhátíðir eru haldnar dagana fram að setningarhátíð og var slík hátíð í dag þar sem þátttakendur frá Gana, Liechtenstein, Íslandi, Ekvador og Kosóvó voru boðnir velkomnir.PyeongChang 2018 - Freydís Halla fánaberi Íslands
Freydís Halla Einarsdóttir, keppandi í alpagreinum, verður fánaberi Íslands á setningarhátíð XXIII Vetrarólympíuleikanna í PyeongChang 2018. Setningarhátíðin fer fram að kvöldi 9. febrúar kl. 20:00 að staðartíma (kl.11:00 á ísl.tíma) og verður hún sýnd í beinni útsendingu á RÚV.
Glæsilegir Reykjavíkurleikar að baki
Íþróttahátíðin WOW Reykjavik International Games fór fram dagana 25. janúar til 4. febrúar. Íþróttabandalag Reykjavíkur, í samvinnu við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafélög í Reykjavík, hefur veg og vanda að skipulagningunni.Sigurður nýr framkvæmdastjóri UMSB
Verðlaunapeningar sem minna á flugelda
Þann 6. október 2018 hefjast Ólympíuleikar ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Eins og á öllum Ólympíuleikum hlýtur það íþróttafólk verðlaunapening að launum sem nær verðlaunapalli og eru Ólympíuleikar ungmenna engin undantekning. Alþjóðaólympíunefndin stóð því fyrir hönnunarkeppni á verðlaunapeningum fyrir Ólympíuleika ungmenna 2018 á dögunum og var þátttaka framar björtustu vonum en um 300 tillögur bárust frá 50 þjóðum. Sigurvegari keppninnar er Muhamad Farid Husen, 18 ára gamall piltur frá Indónesíu, sem kallaði tillögu sína að útliti verðlaunapeninganna „Fireworks of Victory“. Eins og hið myndræna nafn gefur til kynna tekur hönnun verðlaunapeninganna mið af fallegri ásýnd flugelda þegar þeir springa á himninum.
Ólympíuleikar ungmenna eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 15 til 18 ára. Keppt er í mörgum greinum og skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikar fullorðinna. Hugmyndina á Jacues Rogge forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar og var hún fyrst kynnt til sögunnar árið 2001. Árið 2007 var ákveðið að gera hugmynd að veruleika og koma á fót Ólympíuleikum ungmenna. Fyrstu sumarleikarnir fóru fram með pompi og prakt árið 2010 í Singapore og fjórum árum síðar voru sumarleikarnir haldnir í Nanjing í Kína.
Hámarksfjöldi þátttakenda á leikunum eru 3500 íþróttamenn og 875 dómarar. Ísland mun eiga sína fulltrúa á leikunum en endanlegur fjöldi kemur í ljós síðar á árinu.
PyeongChang 2018 - Allir keppendur mættir
Allir fimm íslensku keppendurnir á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang 2018 eru komnir í Ólympíuþorpið eftir langt ferðalag frá Íslandi, Noregi og Bandaríkjunum. Hluti farangurs skilaði sér ekki með hópnum en barst síðdegis í gær og því allt til reiðu fyrir dagskrá næstu daga.PyeongChang 2018 - Íslendingar mættir í Ólympíuþorpið
Íslensku þátttakendurnir á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang 2018 eru mættir í Ólympíuþorpið. Sá fyrsti var reyndar aðalfararstjóri íslenska hópsins, Andri Stefánsson, sem kom til Kóreu á miðvikudaginn til að undirbúa vistarverur og komu íslenska hópsins.
Þekkir þú hættuna við lyfjamisnotkun?
Þekkir þú hættuna við lyfjamisnotkun? Í Laugardalshöll hefur verið settur upp auglýsingaveggur sem að sýnir aukaverkanir við lyfjamisnotkun á myndrænan hátt.
Kíktu í Laugardalshöll og kynntu þér málið á meðan á Reykjavíkurleikunum stendur. Þar er hægt að svara stuttri getraun og eiga möguleika á veglegum vinningum. Dregið verður úr réttum svörum 29. janúar og 5. febrúar. PyeongChang 2018 - Ólympíufarar leggja af stað
Vetrarólympíuleikarnir fara fram í PyeongChang í Suður- Kóreu 9. - 25. febrúar 2018. Verður það í annað sinn sem Suður-Kórea heldur Ólympíuleika, en Sumarólympíuleikarnir 1988 fóru fram í Seoul. Hluti af íslenskum þátttakendum lagði af stað til PyeongChang frá Íslandi í morgun