Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
1

22.06.2019

Evrópuleikarnir 2023 í Krakow

Evrópuleikarnir 2023 í KrakowEvrópuleikarnir 2023 munu fara fram í Krakow í Póllandi. Leikarnir munu þá fara fram í þriðja sinn, en fyrstu Evrópuleikarnir fóru fram í Bakú í Azerbaijan í júní árið 2015 og fara þessa dagana fram í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC). Sú ákvörðun að Krakow yrði gestgjafi leikanna var tekin í dag, þann 22. júní, á ársþingi Evrópusambands Ólympíunefnda sem haldið var í Minsk. Fulltrúar allra 50 Ólympíunefndanna í Evrópu tóku þátt í kjörinu. Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ voru á meðal þeirra sem sátu ársþingið.
Nánar ...
21.06.2019

Minsk 2019- Allir íslensku strákarnir kepptu á Evrópuleikunum 2015

Minsk 2019- Allir íslensku strákarnir kepptu á Evrópuleikunum 2015Evrópuleikarnir fara nú fram í Minsk í Hvíta-Rússlandi. Þetta er í annað sinn sem leikarnir eru haldnir, en fyrstu Evrópuleikarnir fóru fram fyrir fjórum árum í Azerbaidjan. Þá sendi Ísland 18 keppendur til þátttöku, en í þetta sinn keppa sjö Íslendingar á leikunum. Fimm af þessum sjö íslenskum keppendum, þ.e. allir strákarnir í hópnum, kepptu einnig á síðustu Evrópuleikum. Rúmlega 4.000 kepp­endur taka þátt í leikunum nú, en um 6.000 síðast. Keppt er í 15 íþrótta­grein­um.
Nánar ...
21.06.2019

Minsk 2019 - Undankeppni í bogfimi

Minsk 2019 - Undankeppni í bogfimiKeppni er hafin í nokkrum íþróttagreinum á Evrópuleikunum í Minsk þótt að þeir verði fyrst settir í kvöld. Í dag fór fram undankeppni í bogfimi og hnefaleikum ásamt keppni í 3x3 í körfuknattleik. Eowyn Marie Alburo Mamalias var meðal keppenda í undankeppninni í bogfimi, en þar hafnaði hún í 16. sæti með skorið 632.
Nánar ...
21.06.2019

Ólympíudagurinn fer fram 23. júní

Ólympíudagurinn fer fram 23. júníÞann 23. júní nk. er Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og er það í sjötugasta sinn sem dagurinn er haldinn. Hann er haldinn í tilefni af stofnun Alþjóðaólympíunefndarinnar 23. júní árið 1894. Þá má segja að Ólympíuleikar til forna hafi verið endurvaktir og færðir til nútímans. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk til að koma saman, hreyfa sig og hafa gaman, en dagurinn er í raun ætlaður öllum óháð íþróttalegri getu. Meginþema í tengslum við daginn eru þrjú: Hreyfa, læra og uppgötva. Á deginum er kjörið að spreyta sig á ýmiss konar íþróttum og þrautum, en ekki einungis íþróttum sem keppt er í á Ólympíuleikunum. Ólympíudagurinn er einnig kjörinn vettvangur til að kynna gildi Ólympíuhreyfingarinnar sem eru; vinátta, virðing og ávallt að gera sitt besta.
Nánar ...
20.06.2019

Minsk 2019 – Ásgeir fánaberi á setningarhátíðinni

Minsk 2019 – Ásgeir fánaberi á setningarhátíðinniSetningarhátíð Evrópuleikanna fer fram á Dinamo leikvanginum í Minsk föstudagskvöldið 21. júní. Ásgeir Sigurgeirsson keppandi í skotfimi verður fánaberi íslenska hópsins. Ásgeir er fæddur 2. september 1985 og er því á 34. aldursári. Hans keppnisgrein á leikunum er 10m loftskammbyssukeppnin en Ásgeir keppti í henni á fyrstu Evrópuleikunum í Bakú 2015 og lauk keppni þá í 22. sæti. Á þeim leikum keppti Ásgeir einnig í frjálsri skammbyssu og náði þar bestum árangri Íslendinga á leikunum er hann komst í úrslit og endaði í 5. sæti. Ásgeir keppti á Ólympíuleikunum í London 2012, í þessum tveimur skammbyssugreinum og hefur staðið sig vel á erlendum vettvangi á undanförnum árum.
Nánar ...
20.06.2019

Minsk 2019 – Tekið á móti þátttakendum

Minsk 2019 – Tekið á móti þátttakendumÍ kvöld fór fram sérstök móttökuhátíð í íþróttamannaþorpinu í Minsk þar sem allir þátttakendur voru boðnir velkomnir af borgarstjóra þorpsins Siarhei Rudy, framkvæmdastjóra leikanna George Katalin og formanni Evrópuleikanefndar EOC Spyros Capralos.
Nánar ...
20.06.2019

Minsk 2019 – Móttökuhátíð

Minsk 2019 – MóttökuhátíðÍ kvöld fer fram sérstök móttökuhátíð í íþróttamannaþorpinu á Evrópuleikunum í Minsk. Hefst hún kl. 18:00 að staðartíma og byggir á formlegum dagskrárliðum auk skemmtiatriða. Undir lok hennar verða gróðursett eikartré fyrir hverja þjóð, en slík athöfn átti sér einnig stað á Evrópuleikunum sem haldnir voru í Bakú 2015.
Nánar ...
19.06.2019

Minsk 2019 - Keppni á Evrópuleikunum

Minsk 2019 - Keppni á EvrópuleikunumEvrópuleikarnir 2019 verða settir föstudagskvöldið 21. júní nk. í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands. Þann sama dag hefst keppni leikanna og keppir einn Íslendingur strax á fyrsta degi.
Nánar ...
19.06.2019

Valgeir kjörinn varaforseti Evrópska keilusambandsins

Valgeir kjörinn varaforseti Evrópska keilusambandsinsValgeir Guðbjartsson var kjörinn varaforseti Evrópska keilusambandsins (ETBF) til næstu 4 ára á ársþingi sambandsins sem fram fór í Munchen í Þýskalandi þann 9. júní sl. Valgeir hefur verið í stjórn ETBF í 14 ár og þar af sem framkvæmdastjóri þess s.l. 9 ár. Með því að ná kjöri sem varaforseti ETBF færast aðrar skyldur á Valgeir en hann mun m.a. núna sjá um evrópsku mótaröðina í keilu ásamt öðrum verkefnum.
Nánar ...
18.06.2019

Minsk 2019 - 3 dagar í Evrópuleika

Minsk 2019 - 3 dagar í EvrópuleikaEvrópuleikarnir 2019 fara fram í borginni Minsk í Hvíta-Rússlandi þann 21.-30. júní. Leikarnir eru haldnir á vegum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC). Keppt verður í 15 íþróttagreinum og mun Ísland eiga keppendur í badmintoni, júdó, fimleikum, bogfimi og skotíþróttum. Í átta greinum af þeim 15 sem keppt verður í geta keppendur náð lágmörkum á Ólympíuleikana í Tókýó í Japan árið 2020. Evrópuleikarnir eru taldir mikilvægur hluti af undirbúningi íþróttafólks fyrir Ólympíuleikana í Tókýó. Gert er ráð fyrir að um 4.000 keppendur frá 50 löndum taki þátt í Evrópuleikunum og að margir hverjir tryggi sig inn á Ólympíuleikana.
Nánar ...