Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
1

19.06.2018

Námskeið í Ólympíu

Námskeið í ÓlympíuDagana 17. júní – 1. júlí fer fram námskeið fyrir unga þátttakendur í Ólympíu í Grikklandi. Tveir þátttakendur taka þátt fyrir hönd ÍSÍ en þau eru Dominiqua Alma Belányi og Benedikt Jónsson en þau voru valin úr hópi umsækjenda. Námskeiðið stendur yfir í tvær vikur og er aðal umfjöllunarefnið að þessu sinni íþróttamaðurinn sem fyrirmynd.
Nánar ...
18.06.2018

Golfmót SÍÓ

Golfmót SÍÓGolfmót Ólympíufara, á vegum Samtaka íslenskra Ólympíufara, fer fram laugardaginn 23. júní nk., kl.8:00 á Nesvellinum á Seltjarnarnesi. Leikið verður 9 holu fjögurra manna Texas-scramble og ræst verður út á öllum teigum kl.8:30. Kaffi og veitingar í boði fyrir alla fjölskylduna. Skráning fer fram með því að senda póst á alvar@isi.is.
Nánar ...
15.06.2018

Hlaðvarp á Ólympíustöðinni

Hlaðvarp á ÓlympíustöðinniÓlympíustöðin er ókeypis vettvangur sem sýnir beint frá íþróttaviðburðum allt árið um kring. Á stöðinni eru einnig þáttaseríur sem tengjast hinum ýmsu íþróttagreinum og viðtöl við íþróttafólk, en stöðin leggur áherslu á afreksíþróttamenn og þeirra leið að meiri árangri. Nýlega bættist enn við flóruna hjá Ólympíustöðinni, en vikulega er boðið upp á hlaðvarp (podcast) sem kallast „Hugsaðu eins og Ólympíufari“ (Think like an Olympian).
Nánar ...
14.06.2018

ÍSÍ vekur athygli á Ólympíudeginum 23. júní nk

ÍSÍ vekur athygli á Ólympíudeginum 23. júní nkÞann 23. júní nk. er Alþjóðlegi Ólympíudagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim og er það í sjötugasta sinn sem dagurinn er haldinn. Hann er haldinn í tilefni af stofnun Alþjóðaólympíunefndarinnar 23. júní árið 1894. Þá má segja að Ólympíuleikar til forna hafi verið endurvaktir og færðir til nútímans. Markmiðið með deginum er að hvetja fólk til að koma saman, hreyfa sig og hafa gaman, en dagurinn er í raun ætlaður öllum óháð íþróttalegri getu. Meginþema í tengslum við daginn eru þrjú: Hreyfa, læra og uppgötva. Á deginum er kjörið að spreyta sig á ýmiss konar íþróttum og þrautum, en ekki einungis íþróttum sem keppt er í á Ólympíuleikunum. Ólympíudagurinn er einnig kjörinn vettvangur til að kynna gildi Ólympíuhreyfingarinnar sem eru; vinátta, virðing og ávallt að gera sitt besta.
Nánar ...
13.06.2018

Lyfjaeftirlit ÍSÍ og jafningjafræðslan

Lyfjaeftirlit ÍSÍ og jafningjafræðslanNýverið hélt verkefnastjóri Lyfjaeftirlits ÍSÍ, Birgir Sverrisson, erindi fyrir jafningafræðsluna. Erindið fjallaði um anabólíska stera, aukaverkanir og hvatana bakvið notkunina á þeim hvort sem er innan íþrótta eða utan. Hópurinn átti gott spjall um ýmis konar þætti er snúa að andlegum og líkamlegum áhrifum af notkun þessara ólöglegu efna og einnig var rætt um líkamsímynd og umfang notkunar, bæði innan og utan skipulagðs íþróttastarfs. Að lokum var farið stuttlega yfir niðurstöður nýlegra rannsókna á notendum anabólískra stera og rætt um hvernig jafningafræðslan geti stuðlað að því að ungt fólk fái fræðslu um skaðsemi þessara efna og verið miklvægur þáttur í því að hvetja það til heilbrigðar heilsuræktar.
Nánar ...
13.06.2018

Skíðaborg fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Skíðaborg fyrirmyndarfélag ÍSÍSkíðafélag Siglufjarðar, Skíðaborg fékk endurnýjun viðurkenningar sinnar sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ nú nýverið. Félagið fékk fyrst viðurkenningu árið 2014 en viðurkenninguna þarf að endurnýja á fjögurra ára fresti. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti formanni félagsins Kristínu Önnu Guðmundsdóttur viðurkenninguna á uppskeruhátíð félagsins á Siglufirði. Á myndinni eru þau Viðar og Kristín Anna.
Nánar ...
13.06.2018

Sumarfjarnám - Þjálfaramenntun ÍSÍ

Sumarfjarnám - Þjálfaramenntun ÍSÍ Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 18. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Nánar ...
06.06.2018

Grundvallarréttindi íþróttafólks sett fram

Grundvallarréttindi íþróttafólks sett framNýlega birti stýrihópur innan Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) „Skipulagsskrá íþróttafólks“ sem ætlað er að takast á við og vernda grundvallarréttindi og skyldur íþróttafólks um heim allan. Í stýrihópnum, sem settur var saman af Íþróttamannanefnd IOC, eru 20 íþróttamenn hvaðanæva að úr heiminum.
Nánar ...
06.06.2018

Ásdís Rósa endurkjörin sem formaður HNÍ

Ásdís Rósa endurkjörin sem formaður HNÍÁrsþing Hnefaleikasambands Íslands fór fram sunnudaginn 21. maí í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fyrir þinginu lágu þó nokkrar breytingar á regluverki HNÍ, m.a. vegna breytinga hjá AIBA, reglum alþjóðahnefaleikasambandsins.
Nánar ...
06.06.2018

Samningur ÍSÍ og Air Iceland Connect

Samningur ÍSÍ og Air Iceland ConnectÍSÍ og Air Iceland Connect (AIC) undirrituðu í mars 2018 samning um afsláttarkjör á innanlandsflugi fyrir íþróttahreyfinguna. Samningurinn gildir til 1. febrúar 2019. Samstarf ÍSÍ og AIC, áður Flugfélag Íslands, hefur verið langt og farsælt. Þátttaka í íþróttastarfi á Íslandi felur í sér mikil og kostnaðarsöm ferðalög og mikilvægt er að búa við öruggar og reglubundnar flugsamgöngur á milli landshluta.
Nánar ...
04.06.2018

Ársþing HNÍ

Ársþing HNÍÁrsþing Hnefaleikasambands Íslands (HNÍ) fór fram fimmtudaginn 30. maí 2018 sl. í húsakynnum ÍSÍ. Engar breytingar lágu fyrir fund í regluverki HNÍ. Ný stjórn var kjörin og var Ásdís Rósa Gunnarsdóttir endurkjörin formaður sambandsins. Með henni voru endurkjörin í stjórn Árni Stefán Ásgeirsson (varaformaður) Jónas Heiðar Birgisson (gjaldkeri), Áslaug Rós Guðmundsdóttir (ritari). Meðstjórnendur voru kosnir Sólveig Harpa Helgadóttir, Rúnar Svavarsson og Sigríður Birna Bjarnadóttir. Varamenn voru kosin Birna Árnadóttir, Ingólfur Þór Tómasson og Máni Borgarsson.
Nánar ...