Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Forseti ÍSÍ í heimsókn
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, heimsótti um helgina Ólympíuþorpið í Erzurum, þar sem íslensku þátttakendurnir á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar dvelja. Hann skoðaði vistarverur hópsins og skrifstofuaðstöðu og heilsaði upp á íslensku þátttakendurna. Lárus var viðstaddur setningarhátíðina í gærkvöldi og mun í dag fylgjast með keppni hjá íslenska hópnum.
Geir sæmdur Gullmerki ÍSÍ
Á 71. ársþingi KSÍ, sem haldið var um helgina í Vestmannaeyjum, var Geir Þorsteinsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ fyrir hans góðu störf í þágu íþróttahreyfingarinnar og þá ekki síst knattspyrnuhreyfingarinnar. Það var Helga Steinunn Guðmundsdóttir, varaforseti ÍSÍ, sem sæmdi Geir merkinu.71. ársþing KSÍ
Setningarhátíð EYOWF frábær
Setningarhátíð Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar fór fram í kvöld á knattspyrnuleikvanginum Kazim Karabekir. Fánaberi íslenska hópsins var Katla Björg Dagbjartsdóttir og stóð hún sig með sóma í því hlutverki. Setningarhátíð EYOWF 2017 í kvöld
Setningarhátíð Vetrarólympíuhátíðar Evrópuæskunnar fer fram í kvöld. Ólympíuhátíðin er nú að hefjast í þrettánda sinn og fer að þessu sinni fram í Erzurum í Tyrklandi. Þátttökuþjóðir eru 34, þátttakendur eru um 1200 og keppni stendur yfir frá mánudegi til föstudags. Hópurinn kominn til Erzurum
Þátttakendur á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar eru komnir í sínar vistarverur í þorpi leikanna í Erzurum í Tyrklandi.ÍSÍ á Snapchat
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er nú í fyrsta sinn með Snapchat. Notendanafn ÍSÍ á Snapchat er isiiceland.
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í Erzurum í Tyrklandi 12. – 17. febrúar. Ísland á sem fyrr keppendur á leikunum, nú í alpagreinum, skíðagöngu, listskautum og á snjóbretti. Íslenski hópurinn er hluti af ÍSÍ á Snapchat á meðan á viðburðinum stendur. ÍSÍ hvetur fólk til þess að bæta ÍSÍ við á Snapchat (isiiceland) og skyggnast á bak við tjöldin á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar.Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Erzurum
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í Erzurum í Tyrklandi 12. – 17. febrúar. Ísland á sem fyrr keppendur á leikunum, nú í alpagreinum, skíðagöngu, listskautum og á snjóbretti. Keppendur á leikunum eru á aldrinum 14 til 18 ára, þátttökuþjóðir eru 34 og þátttakendur eru um 1200. Setningarhátíðin fer fram kvöldið 12. febrúar, kl.19:30 að staðartíma (16:30 á íslenskum tíma). Lokahátíðin fer fram kvöldið 17. febrúar á sama tíma og setningarhátíðin.1 ár til PyeongChang 2018
Í dag er eitt ár þar til XXIII Vetrarólympíuleikarnir fara fram í borginni PyeongChang í Suður Kóreu dagana 9. til 25. febrúar 2018. Verður það í annað sinn sem Suður Kórea heldur Ólympíuleika, en sumarleikarnir 1988 fóru fram í Seoul. Þetta verða þriðju Vetrarólympíuleikarnir í Asíu, en Japan hefur tvívegis haldið vetrarleika, Sapporo 1972 og Nagano 1998.
Nýr bæklingur - Átröskun og íþróttir
Fundur aðalfararstjóra vegna PyeongChang 2018
Næstu Vetrarólympíuleikar fara fram í PyeongChang í Suður Kóreu í febrúar 2018.
Í síðustu viku fór fram fundur aðalfararstjóra Ólympíunefnda og sótti Andri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ, fundinn fyrir hönd ÍSÍ, en framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefndi hann í hlutverk aðalfararstjóra nýverið.
Margt að læra um góða stjórnunarhætti
Í gær fór fram ráðstefnan „Góðir stjórnunarhættir – ólíkar leiðir að settu marki“ í Háskólanum í Reykjavík. Ráðstefnan var haldin á vegum Íþróttabandalags Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í samstarfi við HR og var hluti af WOW Reykjavik International Games 2017. Á ráðstefnunni deildu þrír erlendir fyrirlesarar reynslu sinni um stjórnunarhætti í íþróttaheiminum. Ráðstefnustjórinn Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, leysti það hlutverk afar vel úr hendi.