Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.10.2023 - 12.08.2023

Fundur hjá...

Í dag er fundur hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ...
23.11.2023 - 12.08.2023

Fundur hjá...

Í dag er fundur hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ...
07.12.2023 - 12.08.2023

Fundur hjá...

Í dag er fundur hjá framkvæmdastjórn ÍSÍ...
2

Um lyfjaeftirlit

Lyfjaeftirlitsnefnd Lyfjaeftirlits Íslands sér um framkvæmd lyfjaeftirlits meðal íþróttafólks á Íslandi. Lyfjaeftirlitsnefndin starfar samkvæmt reglum Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnunarinnar (WADA).

WADA var stofnuð árið 1999 fyrir tilstuðlan Ólympíuhreyfingarinnar (IOC) og ríkisstjórna heimsins í þeim tilgangi að berjast gegn lyfjamisnotkun í íþróttum. Hlutverk WADA er að efla og samræma lyfjaeftirlit í heiminum sem og að fylgjast með framkvæmd lyfjaeftirlits og baráttunni gegn lyfjamisnotkun í allri sinni mynd, um allan heim.

Lyfjaeftirlitið er einn mikilvægra þátta til að stuðla að lyflausum íþróttum.

Alþjóðlegt lyfjaeftirlit er framkvæmt í samræmi við Alþjóðalyfjareglurnar (World Anti Doping Code) og alþjóðlega staðla WADA um lyfjaeftirlit.

Íþróttamaður sem keppir hvort heldur er innanlands eða á alþjóðavettvangi, má eiga von á að vera boðaður í lyfjapróf hvar og hvenær sem er. Lyfjaeftirlitið getur verið framkvæmt á keppnisstað í tengslum við keppni, eða utan keppni, t.d. á æfingu eða heima hjá viðkomandi keppanda, án nokkurrar viðvörunar. Viðurkenndir lyfjaeftirlitsaðilar sjá um framkvæmd eftirlitsins.

Gott lyfjaeftirlit er afar mikilvægt – bæði fyrir íþróttafólkið og íþróttina.