Ólympíukyndillinn tendraður þann 21. apríl
Skipulagsnefnd Ólympíuleikanna 2016 tilkynnti nýlega að kveikt yrði á Ólympíukyndlinum þann 21. apríl 2016 í borginni Ólympíu á Grikklandi, þar sem Ólympíuleikarnir til forna fóru fram. Þann 3. maí mun kyndillinn hefja 95 daga för sína um Brasilíu, sem endar þann 5. ágúst þegar að Ólympíueldurinn verður tendraður á setningarhátíð leikanna.
Formlegt boð til Ríó
Eitt ár til Ólympíuleika í Ríó
Í dag er eitt ár þar til Ólympíuleikarnir verða settir í Ríó í Brasilíu, þann 5. ágúst 2016. Forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar, Thomas Bach, var á ströndinni í Ríó í morgun ásamt brasilískum ólympíuförum og öðru brasilísku íþróttafólki til þess að fagna því að eitt ár sé til leika.Styrkveiting Ólympíusamhjálpar vegna RÍÓ 2016
Í dag var gengið frá samningum Ólympíusamhjálparinnar við sérsambönd ÍSÍ og íþróttamanna þeirra vegna undirbúnings fyrir Ólympíuleikana í Ríó 2016. Um er að ræða styrki vegna átta íþróttamanna frá fimm sérsamböndum.
Móttaka til heiðurs þátttakendum á Ólympíuleikum ungmenna
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stóð í gær fyrir móttöku til heiðurs þátttakendum á Ólympíuleikum ungmenna sem fram fóru í Nanjing í Kína 16. - 28. ágúst s.l.  Á leikunum voru íslenskir keppendur í sundi og knattspyrnu.Verðlaunaafhending Nanjing
Úrslit liggja nú fyrir í knattspyrnukeppni drengja á Ólympíuleikum ungmenna í Nanjing í Kína. Brons á Ólympíuleikum ungmenna
U-15 ára landslið drengja í knattspyrnu tryggði sér fyrr í morgun brons á Ólympíuleikum ungmenna í Nanjing í KínaNanjing 2014 - Knattspyrna drengja
Í gær lék U-15 landsliða drengja í undanúrslitum á Ólympíuleikum ungmenna í Nanjing í Kína.  Leikið var á móti ríkjandi Asíumeisturum í þessum aldursflokki, liði Suður-Kóreu og var ljóst að erfiðan leik yrði að ræða.  Lið Suður-Kóreu er mjög vel skipulagt og þar eru einstaklingar sem búa yfir góðri tækni og miklum hraða.