Fréttir frá Vetrarólympíuleikum
ÍSÍ boðið formlega til þátttöku í PyeongChang 2018
Alþjóðaólympíunefndin sendi nýlega öllum ólympíunefndum formlegt boð til þátttöku í XXIII Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang í Suður- Kóreu 9. - 25. febrúar 2018. Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ staðfesti þátttöku Íslands á framkvæmdastjórnarfundi ÍSÍ 2. mars sl.
Fundur aðalfararstjóra vegna PyeongChang 2018
Næstu Vetrarólympíuleikar fara fram í PyeongChang í Suður Kóreu í febrúar 2018.
Í síðustu viku fór fram fundur aðalfararstjóra Ólympíunefnda og sótti Andri Stefánsson, sviðsstjóri Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ, fundinn fyrir hönd ÍSÍ, en framkvæmdastjórn ÍSÍ útnefndi hann í hlutverk aðalfararstjóra nýverið.
Fánaberi á lokahátíð Vetrarólympíuleikanna í Sochi
Nú líður að lokahátíð Vetrarólympíuleikanna í Sochi en hún hefst kl. 16:00 í dag, að íslenskum tíma.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur valið Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur til að vera fánaberi íslenska Ólympíuhópsins á lokahátíðinni en Helga María, sem er aðeins 18 ára, stóð sig afar vel á leikunum.
Keppni lokið í stórsvigi
Einar Kristinn Kristgeirsson og Brynjar Jökull Guðmundsson hafa nú lokið keppni í stórsvigi karla í Sochi. Þeir voru í 63. og 65. sæti eftir fyrri ferðina, af þeim 79 keppendum sem komust niður. Einar Kristinn fór brautina á samtals 3:06,55 mínútum og hafnaði í 56. sæti. Hann var 20,16 sekúndum á eftir Ólympíumeistaranum Ted Ligety. Sævar keppti í sprettgöngu
Sochi 2014 – Breyting á íslenska hópnum
María Guðmundsdóttir keppandi í alpagreinum skíðaíþrótta slasaðist á móti í Þýskalandi í gær. Ljóst er að hún mun ekki geta keppt á Vetrarólympíuleikunum í Sochi sem hefjast þann 7. febrúar nk. og hefur Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskað formlega eftir því við ÍSÍ að varamaður keppi í hennar stað. Sochi 2014 - Móttökuhátíð í Ólympíuþorpi
Tímasetningu á móttökuhátíð íslenska hópsins hefur verið breytt.Vetrarólympíuleikar – Sochi 2014
Nú styttist í að XXII Vetrarólympíuleikarnir verða settir í Sochi í Rússlandi, en þeir verða settir þann 7. febrúar nk. Andri Stefánsson, aðalfararstjóri íslenska hópsins, er kominn til Sochi og byrjaður að undirbúa vistarverur íslenska hópsins. Ólympíuhópurinn í Sochi
100 dagar í Vetrarólympíuleika
Í dag 30. október 2013 eru 100 dagar í að Vetrarólympíuleikarnir í Sochi verða settir.
Það má því með réttu segja að lokaundirbúningur sé hafinn, en þessa dagana eru íþróttamenn að vinna að því að ná tilsettum árangri til að tryggja sér keppnisrétt á leikunum.
Vetrarólympíuleikar - Sochi 2014
Ólympíuhópur – Sochi 2014
Eftir fimm mánuði fara Vetrarólympíuleikar fram í rússnesku borginni Sochi við Svartahaf.
Skíðasamband Íslands (SKÍ) hefur tilnefnt Ólympíuhóp sambandsins, en hann skipa þeir íþróttamenn sem eiga raunhæfa möguleika á að tryggja sér keppnisrétt á leikunum og taka þátt í landsliðsverkefnum SKÍ á komandi vetri.