Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Ólympíuhópur ÍSÍ

Ólympíuleikarnir fara fram í París í Frakklandi 26. júlí til 11. ágúst 2024. 

Neðangreindir fimm einstaklingar mynda Ólympíuhóp ÍSÍ. Þeir hafa tryggt sér þátttökurétt á leikunum eða fengu boðssæti vegna góðs gengis í keppnum síðustu mánuði. Æfingar og almennur undirbúningur stendur sem hæst hjá öllum en hópurinn hittist reglulega síðstaliðinn vetur, sem var hluti af hinum félagslega og andlega undirbúningi fyrir sjálfa leikana. 

Vésteinn Hafsteinsson, Afreksstjóri ÍSÍ, hefur haldið utan um hópinn og mun fara með honum út sem aðalfararstjóri. 

Hér fyrir neðan má finna dagskrá þeirra keppenda sem fara á leikana. 

Hér má finna dagskrá fyrir Ólympíuleikana. 

Anton Sveinn McKee, bringusund

Er fyrsti keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ sem tryggði sér þátttökurétt á Ólympíuleikana, en það var í júlí 2023.

Anton Sveinn er 30 ára og syndir fyrir Sundfélag Hafnarfjarðar. Hann byrjaði mjög ungur að synda og hefur synt alla tíð.

Anton Sveinn keppir bæði í 100m og 200m bringusundi og keppir:

27. júlí 100m bringusund kl.11.00 (kl.09.00 ísl.tíma) og verða undanúrslit kl.21.12 (kl.19.12 ísl.tíma)
28. júlí 100m bringusund úrslit kl.21.44 (kl.19.44 ísl.tíma)

30. júlí 200m bringusund kl.11.00 (kl.09.00 ísl.tíma) og verða undanúrslit kl.21.47 (kl.19.47 ísl.tíma)
31. júlí 200m bringusund úrslit kl.22.15 (kl.20.15 ísl.tíma)

Hér er Instagramsíða Antons Sveins

Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut

Er annar keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ inn á Ólympíuleikana en Guðlaug fékk boð um þátttöku í maí 2024.

Guðlaug Edda er 29 ára og æfir bæði á Íslandi og erlendis en hún byrjaði að æfa þríþraut árið 2017.

Ólympísk þríþraut samanstendur af 1,5km sundi, 40km hjólreiðum og 10km hlaupi.  

Guðlaug Edda keppir 31. júlí kl.08.00 (kl.06.00 ísl.tíma)

Hér er Instagramsíða Guðlaugar Eddu

Hákon Þór Svavarsson, haglabyssuskotfimi

Er þriðji keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ inn á Ólympíuleikana en Hákon Þór fékk boð um þátttöku í júní 2024.

Hákon Þór er 45 ára og æfir með Skotíþróttafélagi Suðurlands. Hann byrjaði að æfa haglabyssuskotfimi 21 árs. 

Hákon Þór keppir á Chateauroux Shooting Ctr., sem er í um 270 km fjarlægð frá París, og keppir sem hér segir:

2. ágúst kl.09.00 (kl.07.00 ísl.tíma) - keppni 75 skot
3. ágúst kl.09.00 (kl.07.00 ísl.tíma)- keppni 50 skot
3. ágúst kl.15.30 (kl.13.30 ísl.tíma) - úrslit

Hér er Instagramsíða Hákons Þórs

Snæfríður Sól Jórunnardóttir, skriðsund

Er fjórði keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ inn á Ólympíuleikana en Snæfríður Sól fékk boð um þátttöku í júní 2024.

Snæfríður Sól er 23 ára og æfir með Aalborg svömmeklub. Hún byrjaði mjög ung að synda og hefur synt alla tíð.  

Snæfríður keppir í bæði 100m og 200m skriðsundi og keppir sem hér segir:

28. júlí 200m skriðsund kl.11.00 (kl.09.00 ísl.tíma) og undanúrslit kl.21.50 (kl.19.50 ísl.tíma)
29. júlí úrslit kl.21.41 (kl.19.41 ísl.tíma)

30. júlí 100m skriðsund kl.11.00 (kl.09.00 ísl.tíma) og undanúrslit kl.21.25 (kl.19.25 ísl.tíma)
31. júlí úrslit kl.20.30 (kl.18.30 ísl.tíma)

Hér er Instagramsíða Snæfríðar Sólar

 


Aðrir í Ólympíuhópi ÍSÍ sem ekki taka þátt í Ólympíuleikunum að þessu sinni:

Erna Sóley Gunnarsdóttir, kúluvarp

Er fimmti keppandinn í Ólympíuhópi ÍSÍ inn á Ólympíuleikana en Erna Sóley fékk boð um þátttöku í júlí 2024.

Erna Sóley er 24 ára og æfir með ÍR. Hún byrjaði 9 ára að æfa frjálsar íþróttir.

Erna Sóley keppir í kúluvarpi. Keppnisdagar eru:

8. ágúst kl.10.25 (kl.08.25 ísl.tíma)
9. ágúst kl.19.40 (kl.17.40 ísl.tíma) verða úrslit

Hér er Instagramsíða Ernu Sóleyjar

 

Baldvin Þór Magnússon, 5000m hlaup

25 ára og æfir erlendis.

Byrjaði að hlaupa 12 ára.

Hér er Instagramsíða Baldvins Þórs

Guðni Valur Guðnason, kringlukast

28 ára æfir með ÍR.

Byrjaði að æfa kringlukast árið 2014.

Hér er Instagramsíða Guðna Vals

Hilmar Örn Jónsson, sleggjukast

28 ára og æfir með FH.

Byrjaði 12 ára að æfa frjálsar og 15 ára í sleggjukasti.

Hér er Instagramsíða Hilmars Arnar

Ingibjörg Erla Grétarsdóttir, taekwondo

29 ára og æfir með Björk.

Byrjaði árið 2002 að æfa taekwondo.  

Hér er Instagramsíða Ingibjargar Erlu

Eygló Fanndal Sturludóttir, ólympískar lyftingar

22 ára og keppir fyrir hönd Lyftingafélags Reykjavíkur.

Byrjaði að æfa ólympískar lyftingar árið 2020.

Hér er Instagramsíða Eyglóar

Svana Bjarnason, klifur

32 ára og æfir með Blackout í Frakklandi.

Byrjaði að klifra um 10 ára aldurinn.  

Hér er Instagramsíða Svönu

Thelma Aðalsteinsdóttir, áhaldafimleikar

23 ára og æfir með Gerplu.

Byrjaði að æfa 3 ára.  

Hér er Instagramsíða Thelmu

Valgarð Reinhardsson, áhaldafimleikar

27 ára og æfir með Gerplu.

Byrjaði að æfa 5 ára.  

Hér er Instagramsíða Valgarðs