Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

14

Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

14.05.2025

 

Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 9. júní næstkomandi.  Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.

Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka. Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 eða á vidar@isi.is 

Umsagnir nemenda um kosti námsins:

„Faglegt og gott námsefni, þverfagleg nálgun á þjálfun og gott samband inn í íþróttagreinar“

„Gott aðgengi að kennara og vel útskýrt námsefni“

„Lærdómsríkt, skemmtilegt og nytsamlegt“

„Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn“

„Mér fannst það ýta undir gagnrýna hugsun og kenndi mér ýmislegt hagnýtt sem hefur nýst mér í þjálfarastarfinu“

„Kemur með kunnáttu/þætti sem margir íþróttamenn hafa ekki vitneskju um en eru gríðarlega mikilvægir“

„Gott skipulag, gott kennsluefni og kennarinn er fljótur til svars þegar maður þarf hjálp“