Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

12.09.2024 - 12.09.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
10.10.2024 - 10.10.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
27

Á þessum degi fyrir 16 árum...

24.08.2024

 

Á þessum degi fyrir 16 árum vann karlalandsliðið í handknattleik til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Það er besti árangur sem náðst hefur í hópíþrótt í íslenskri íþróttasögu.

Fyrsti leikur íslenska liðsins á Ólympíuleikunum í Peking var gegn Rússum og vann íslenska liðið 33-31. Annar leikur liðsins var gegn heimsmeisturum Þýskalands og vann íslenska liðið einnig þann leik, 33-29. 
Þriðji leikurinn var gegn Suður-Kóreu sem íslenska liðið tapaði, 22-21. Fjórði leikur var gegn Dönum og lauk leiknum með jafntefli, 32-32.
Fimmti leikur íslenska liðsins í riðlakeppninni var gegn Egyptalandi. Leiknum lauk með jafntefli 32-32 og Ísland þar með komið í 8-liða úrslit á Ólympíuleikum.

Ísland mætti Pólverjum í 8-liða úrslitum, vann leikinn 32-30 og var þar með komið í undanúrslit. Ísland mætti Spánverjum í undanúrslitum. Íslenska liðið vann 36-30 og þar með komið í úrslitaleik á Ólympíuleikunum. Ísland mætti þar Frökkum. Franska liðið vann 28-23.

Íslenska liðið fékk silfurverðlaun, sem er einstakt afrek í íslenskri íþróttasögu.