Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
24

Hákon Þór fer á Ólympíuleikana í París

13.06.2024

 

Hákon Þór Svavarsson, skotíþróttamaður, hefur fengið boð um þátttöku á Ólympíuleikunum í París í sumar en Alþjóðaólympíunefndin staðfesti svo í dag. Hákon Þór verður þar með þriðji Íslendingurinn sem kemst inn á Ólympíuleikana sem haldnir verða í júlí og fram í ágúst. Hákon Þór fékk boðssæti sem Alþjóðaólympíunefndin (IOC) staðfesti í dag. Hákon hefur stefnt markvisst að því að komast á leikana undanfarin ár en hann er nú staddur í Lonato á Ítalíu þar sem keppni á Heimsbikarmótinu er að hefjast.

Framundan eru mót hjá íþróttafólkinu sem mynda Ólympíuhóp ÍSÍ, sem og öðru íslensku íþróttafólki, sem enn á möguleika á því að vinna sér inn þátttökurétt en vonir standa til að það fjölgi í hópnum sem fer á Ólympíuleikana á næstu vikum. Anton Sveinn McKee, sundmaður, og Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona hafa nú þegar tryggt sér þátttökurétt á leikunum.

ÍSÍ óskar Hákoni Þór innilega til hamingju með þátttökusætið og góðs gengis í undirbúningi sínum fyrir Ólympíuleikana. 

Myndir með frétt