Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

16.05.2024 - 16.05.2024

Ársþing FSÍ 2024

Ársþing Fimleikasambands Íslands (FSÍ) verður...
15

Íþróttafólk sérsambanda ÍSÍ heiðrað

04.01.2024

 

Í kvöld fór fram afhending viðurkenninga til íþróttafólks sérsambanda ÍSÍ 2023 á Hótel Hilton.

Á hverju ári veitir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands viðurkenningar til íþróttamanna og íþróttakvenna sérsambanda á sameiginlegu hófi ÍSÍ og Samtaka íþróttafréttamanna í tengslum við kjör á Íþróttamanni ársins. Í kvöld fékk íþróttafólkið afhenta veglega verðlaunagripi sem Ólympíufjölskylda ÍSÍ gefur, en þau fyrirtækin sem mynda saman Ólympíufjölskyldu ÍSÍ eru Icelandair, Íslensk getspá og Toyota.

Hér á vefsíðu ÍSÍ má sjá íþróttafólk sérsambanda ÍSÍ 2023.

ÍSÍ óskar afreksfólki sérsambanda innilega til hamingju með frábæran árangur á árinu 2023 og allra heilla á árinu 2024. 

ÍSÍ vill einnig þakka fyrirtækjunum sem mynda Ólympíufjölskyldu ÍSÍ og fulltrúum þeirra fyrir allan þeirra stuðning.  Ólympíufjölskylda ÍSÍ eru Icelandair, Íslensk Getspá og Toyota.


Mynd/Viktor Örn Guðlaugsson.  Myndir frá hófinu má inn á myndasíðu ÍSÍ.