Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Sjálfboðaliðum þakkað með málþingi og vöfflukaffi

06.12.2023

 

Í gær var Dagur sjálfboðaliðans og var hann haldinn hátíðlegur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Í byrjun var boðið upp á málþing þar sem þau þrjú, sem tilnefnd voru sem íþróttaeldhugar ársins 2022, Haraldur Ingólfsson (Þór og Þór/KA), Þóra Guðrún Gunnarsdóttir (ÍSS, Björninn, SR) og Friðrik Þór Óskarsson (FRÍ, ÍR) sögðu frá sinni hlið sem sjálfboðaliðar. Að málþingi loknu buðu ÍSÍ og UMFÍ sjálfboðaliðum íþróttahreyfingarinnar í vöfflukaffi í boði Vilko og Mjólkursamsölunnar. Þó nokkur fjöldi mætti og skapaðist skemmtileg stemmning auk þess ilmurinn var afar lokkandi.

ÍSÍ sendir öllum sjálfboðaliðum í íþróttahreyfingunni bestu kveðjur og þakkir fyrir þeirra óeigingjörnu störf í þágu íþróttanna í landinu!

Myndir/Jón Aðalsteinn UMFÍ

Myndir með frétt