Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
12.11.2024 - 12.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
24

HR kynnir nýjar reglur um stuðning við afreksíþróttafólk í námi

31.10.2023

 

Á dögunum kynnti Háskólinn í Reykjavík (HR) nýjar reglur um stuðning við afreksíþróttafólk í námi. Þannig er tekið tillit til æfinga og keppni afreksíþróttafólks eftir fremsta megni, sem þýðir að nemendur geta aðlagað námshraða og óskað eftir tilfærslum á skiladögum verkefna ef þörf þykir.  Þá verða einnig reglur um próftöku rýmri en hjá öðrum nemendum. 

Reglurnar fá finna inn á heimasíðu HR.  Þær gilda fyrir alla nemendur skólans, en ekki eingöngu þá sem stunda nám í íþróttafræðideild.


ÍSÍ fagnar því að afreks- og íþróttafólki sé boðið upp á að aðlaga nám sitt til að létta undir með þeim svo hægt sé að stunda íþróttir af krafti á hæsta stigi.