Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
3

Þrír skólar dregnir út í Ólympíuhlaupi ÍSÍ

12.10.2023

 

Ólympíuhlaup ÍSÍ var formlega sett í Grundaskóla á Akranesi þann 7. september síðastliðinn þar sem nemendur voru til fyrirmyndar og allt skipulag í kringum hlaupið mjög gott.  Veðrið lék líka við hlauparana, hlýtt, logn en smá rigning. 

Með hlaupinu er leitast við að hvetja nemendur í grunnskólum landsins til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Hver skóli sem tekur þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ fær viðurkenningu þar sem fram kemur hversu margir nemendur tóku þátt og heildarfjöldi kílómetra sem nemendur lögðu að baki. Þátttakan í ár hefur verið mjög góð, en nú hafa 68 grunnskólar skilað inn niðurstöðum og 16.134 nemandi hlaupið samtals 56.997 kílómetra eða rúmlega 43 sinnum í kringum landið.

Í ár eins og undanfarin ár hafa þrír skólar sem lokið hafa hlaupinu og skilað inn upplýsingum til ÍSÍ fyrir 10. október verið dregnir út. Þessir skólar eru Ártúnsskóli í Reykjavík, Síðuskóli á Akureyri og Stekkjaskóli á Selfossi. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands þakkar öllum þeim skólum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna, en bendir jafnframt á að enn er hægt að hlaupa og fá viðurkenningarskjal þó að búið sé að draga út vinningana.

Samstarfsaðilar Ólympíuhlaups ÍSÍ eru Mjólkursamsalan sem hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala frá upphafi og gefið nemendum þess skóla sem opnar hlaupið kókómjólk, og Íþrótta-og heilsufræðingafélag Íslands.

Skráning fer fram hér

Myndir frá Ólympíuhlaupina er að finna hér