Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
4

Íþróttaviku Evrópu formlega lokið

06.10.2023

 

Vikuna 23. – 30. september var mikið um að vera á öllu landinu, í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. Heilsueflandi sveitarfélög, íþróttahéruð, sérsambönd, íþróttafélög og framhaldsskólar hafa útbúið metnaðarfullar dagskrár og viðburði til að kynna hreyfingu og heilsutengda viðburði í sínu nærumhverfi.

Vikan í höfuðborginni byrjaði með sjóbaðs-zumba gleðisprengju í Nauthólsvík, laugardaginn 23. september, sem tókst með eindæmum vel.

Á dagskrá í Íþróttavikunni voru til dæmis opnir tímar/æfingar hjá íþróttafélögum víðs vegar um landið, sem vildu kynna sínar íþróttir og námskeið. Líkamsræktarstöðvar voru með opin hús, boðið var upp á afríska dansa með lifandi trommuslætti, á Haustmóti Skautasambands Íslands var kynning á skautaati og frítt var í sundlaugar víða um land. Sveitarfélögin komu virkilega sterk inn og buðu 29 sveitarfélög uppá fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá eins og Hamingjudaga, Heilsuvikur, heilsugöngur og fjölskylduhlaup auk fyrirlestra sem fluttir voru af m.a. Dr. Viðari Halldórssyni, Erlu Björnsdóttur, Arnari Hafsteinssyni, Pálmari Ragnarssyni, Margréti Láru Viðarsdóttur og Einari Erni Guðmundssyni, sem fóru víða um landið þessa viku.  

Öll sveitarfélögin sem tóku þátt fengu styrk. Sautján framhaldsskólar og sex íþróttahéruð fengu einnig styrk frá ÍSÍ og buðu upp á metnaðarfullar dagskrár með heilsutengdum viðburðum og má þar nefna göngur, ratleiki, fjallgöngur og bekkpressukeppni. 

Samfélagsmiðlar BeActive Iceland voru stútfullir af skemmtilegu efni sem var merkt #beactiveiceland og #beactive.  Flesta viðburði má sjá á heimasíðu verkefnisins www.beactive.is 

Fleiri myndir frá vikunni má sjá hér.

ÍSÍ þakkar öllum þeim sem gerðu Íþróttaviku Evrópu ógleymanlega í ár og hlakkar til Íþróttaviku Evrópu árið 2024.
Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur fengið styrk úr Erasmus+ styrkjakerfinu til þess að standa fyrir verkefninu hér á landi. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.


ÍSÍ hvetur alla, sem vilja vera með á næsta ári, að senda póst á beactive@isi.is.

Myndir með frétt