Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
2

Tvær nýjar íþróttagreinar samþykktar af ÍSÍ

22.06.2023

 

Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti nýlega tvær nýjar íþróttagreinar; pílu og amerískan fótbolta. 

Með staðfestingu ÍSÍ þá verður hægt að afgreiða þær umsóknir sem liggja þegar fyrir um inngöngu sérfélaga um pílu og amerískan fótbolta og einnig mega þá íþróttafélög skrá iðkendur í þessar íþróttagreinar, líkt og iðkendur annarra íþrótta sem viðurkenndar eru af ÍSÍ. Sú talning/skráning iðkenda skilar sér í næstu starfsskýrsluskilum.

Amerískur fótbolti er stundaður í einu félagi á Íslandi, sem þegar hefur sótt um aðild að íþróttahéraði innan vébanda ÍSÍ.

Píla hefur lengi verið stunduð hjá íþróttafélögum en þá sem félagsstarfsemi en ekki íþróttastarfsemi þar sem íþróttin var ekki viðurkennd sem íþrótt innan ÍSÍ fyrr en núna. Undanfarið hefur iðkun pílu farið hraðvaxandi á landvísu og ýmis sérfélög um pílu sótt um aðild að íþróttahéruðum innan ÍSÍ.  

Framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkti pílu sem íþrótt en þó með fyrirvara um að fundin verði lausn á innleiðingu þess skipulags sem nú þegar er um píluna hér á landi, inn í íþróttahreyfinguna. Starfandi á Íslandi er Íslenska pílukastsambandið, sem er aðili að Alþjóðapílukastsambandinu en lög ÍSÍ gera ekki ráð fyrir því að hægt sé að taka landssamtök inn í sambandið heldur verða sérsambönd til við ákveðna þróun og vöxt íþróttarinnar á landsvísu innan ÍSÍ.

Þegar íþróttin hefur skilað upplýsingum um iðkendur í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ um einhvern tíma og þannig staðfest að stöðugleiki sé í ástundun íþróttarinnar innan vébanda ÍSÍ, verður væntanlega sótt um heimild til Íþróttaþings ÍSÍ um stofnun sérsambands, að því gefnu að íþróttin uppfylli öll skilyrði þar að lútandi.

ÍSÍ og Íslenska pílukastsambandið munu næstu misserin vinna saman að því að innleiða íþróttina í íþróttahreyfinguna og samræma lög, reglur og stefnur Íslenska pílukastsambandsins við kröfur íþróttahreyfingarinnar þar að lútandi.