Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

17

Anton Helgi nýr formaður HSV

09.06.2023

 

Ársþing HSV fór fram miðvikudaginn 24. maí á 4. hæð stjórnsýsluhússins á Ísafirði. Kristján Kristjánsson var kosinn þingforseti og stjórnaði hann þinginu af mikilli festu og röggsemi. Þátttakendur í þinginu voru tæplega 30.

Samþykkt var lagabreytingartillaga á 11. grein laga sem felur í sér að kosnir verði 3 aðilar í uppstillingarnefnd til eins árs. Á þinginu lagði stjórn HSV til að Klifurfélagi Vestfjarða yrði veitt innganga í HSV. Félagið hefur þegar skilað inn tilskildum gögnum sem 3. grein laga kveður á um. Klifurfélag Vestfjarða er áhugamannafélag, tilgangur þess er að stuðla að framgangi klifuríþrótta á Vestfjörðum og auka áhuga fólks á hvers kyns klettaklifri og grjótglímu á Vestfjörðum sem álitlegu svæði til að stunda þessa iðju. Félagið stóð fyrir byggingu á klifuraðstöðu innandyra á Ísafirði og er ætlunin að haf þar reglubundnar æfingar, námskeið og jafnvel þjálfa unglinga til þess að geta keppt í innanhúsklifri. Innahúsklifur sem íþrótt nýtur mikilla og síaukinna vinsælda.

Úr stjórn gengu Elísa Ósk Jónsdóttir, Ásgerður Þorleifsdóttir og Þóra Marý Arnórsdóttir. Anton Helgi Guðjónsson var kjörinn formaður HSV og tveir voru kosnir í aðalstjórn til tveggja ára, þau Páll Janus Þórðarsson og Ingibjörg Elín Magnúsdóttir. Í varastjórn voru kosin Sigurður Óli Rúnarsson, Magnús Þór Bjarnason og Eydís Rún Jónsdóttir. Stjórn HSV er því þannig skipuð: Anton Helgi Guðjónsson – formaður, Hjördís Þráinsdóttir, Axel Sveinsson, Ingibjörg Elín Magnúsdóttir og Páll Janus Þórðarson. Varastjórn:  Sigurður Óli Rúnarsson, Magnús Þór Bjarnason og Eydís Rún Jónsdóttir

Daníel Jakobsson nýkjörinn meðstjórnandi í framkvæmdastjórn ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ og ávarpaði við þingsetninguna. Þess má geta að Daníel var sæmdur silfurmerki HSV á þinginu. Alls voru veitt sex silfurmerki og fimm gullmerki HSV á þinginu og má lesa nánar um heiðurshafana í frétt á heimasíðu HSV.