Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

„Stuðlar tvímælalaust að betra og faglegra starfi innan félagsins“

23.05.2023

 

Íþróttafélagið Akur fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á aðalfundi félagsins í Ánni að Skipagötu 14 á Akureyri mánudaginn 22. maí síðastliðinn.  Það var Viðar Sigurjónsson frá stjórnsýslusviði ÍSÍ sem afhenti formanni félagsins Jóni Heiðari Jónssyni viðurkenninguna.  Á myndinni eru frá vinstri: Jósep Sigurjónsson, Elvar Thorarensen, Jón Heiðar Daðason, Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála hjá Akureyrarbæ, Oddur Hrafnsson, Hildur Haraldsdóttir, Jón Heiðar Jónsson formaður með viðurkenninguna, Arnfríður Stefánsdóttir, Sigríður Þ. Jósepsdóttir, Heiðar Hjalti Bergsson, Kolbeinn J. Skagfjörð, Helga Björg Ingvadóttir framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akureyrar, Svava Vilhjálmsdóttir og Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ.

„Það að hafa farið í þessa vegferð hefur verið mjög gagnlegt og stuðlar tvímælalaust að betra og faglegra starfi innan félagsins. Við stjórnarfólk og þjálfarar erum afar ánægð og fögnum því að hafa náð þessum áfanga að verða Fyrirmyndarfélag ÍSÍ“ sagði Jón Heiðar Jónsson formaður af þessu tilefni.