Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

„Viðurkenningin hefur skýrt verkferla og viðbrögð stjórnar og sjálfboðaliða“

24.03.2023

 

Skotfélagið Markviss fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á ársþingi USAH fimmtudaginn 23. mars síðastliðinn.  Það var Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ sem afhenti Jóni B. Kristjánssyni formanni félagsins viðurkenninguna. Á myndinni eru Andri Stefánsson, Jón B. Kristjánsson og Snjólaug M. Jónsdóttir, formaður USAH. 

Viðurkenningin hefur skýrt verkferla og viðbrögð stjórnar og sjálfboðaliða þar sem allar upplýsingar eru á einum stað. Ungliðastarf hefur orðið markvissara og aukist í framhaldinu. Við höfum auk þess fundið fyrir aukinni velvild í okkar nærumhverfi, jafnt hjá almenningi sem sveitarstjórn og styrktaraðilum sagði Jón B. Kristjánsson formaður af þessu tilefni.