Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
27.07.2024 - 13.08.2024

Keppni í 100 m...

Anton Sveinn McKee keppir í 100 m bringusundi...
27

Vertu með bæklingurinn kominn út á úkraínsku

17.03.2023

 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) hófu að gefa út bæklinginn Vertu með árið 2019 með það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi.

Markhópur efnisins eru foreldrar barna og ungmenna af erlendum uppruna. Í bæklingnum er að finna hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins. Sem dæmi má nefna; upplýsingar um æfingagjöld íþróttafélaga, frístundastyrki, forvarnargildi íþrótta, mikilvægi þátttöku foreldra og kosti þess að hreyfa sig í skipulögðu starfi.

Bæklingurinn er nú til á 10 tungumálum, en nýjasta tungumálið er úkraínska. Önnur tungumál eru íslenska, enska, pólska, tælenska, litháíska, filippseyska, víetnamska, spænska og arabíska.

Efnið er bæði til rafrænt á heimasíðu ÍSÍ og í prentuðu formi á skrifstofu ÍSÍ.