Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

„Frábært að fá þessa viðurkenningu“

01.03.2023

 

Ungmennafélagið Narfi í Hrísey fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ í dag, 1. mars.  Það var Hrund Teitsdóttir formaður félagsins sem tók við viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónssonar sérfræðings á Stjórnsýslusviði ÍSÍ.  Fleiri Fyrirmyndarfélög eru innan Íþróttabandalags Akureyrar en í nokkru öðru íþróttahéraði og mun þeim fjölga enn frekar á næstunni. 

Á myndinni eru frá vinstri; Ellert Örn Erlingsson fostöðumaður íþróttamála hjá Akureyrarbæ, Birna Baldursdóttir starfandi formaður ÍBA, Ingólfur Sigfússon gjaldkeri Narfa, Hrund Teitsdóttir, Viðar Sigurjónsson og Helga Björg Ingvadóttir framkvæmdastjóri ÍBA.

„Við í Ungmennafélaginu Narfa í Hrísey erum bæði þakklát og stolt að hljóta viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Það er markmið okkar að standa fyrir öflugu starfi og að vera til fyrirmyndar á öllum sviðum og því frábært að fá þessa viðurkenningu“ sagði Hrund Teitsdóttir formaður félagsins við þetta tilefni.