Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.10.2024 - 26.10.2024

Landsþing LH 2024

Ársþing Landssambands hestamannafélaga verður...
01.11.2024 - 30.11.2024

Syndum

Verkefnið Syndum hefst 1. nóvember og stendur...
21.11.2024 - 21.11.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
13

50. ársþing SÍL

01.03.2023

 

Laugardaginn 18. febrúar sl. fór fram 50. ársþing Siglingasambands Íslands en það var haldið í Íþróttamiðstöðinni að Engjavegi. Á þingið mættu fulltrúar frá 5 siglingafélögum og var fyrrum formaður Siglingasambandsins, Finnur Torfi Stefánsson, þingforseti.  Farið var yfir bæði starf síðasta árs sem og línur lagðar fyrir árið sem er framundan.

Á þinginu var einnig kosið í stjórn og var stjórnin endurkjörin og þar með Gunnar Ólafur Haraldsson endurkjörinn formaður.  Ein breyting var á stjórninni en María Sif Guðmundsdóttir kom ný inn í sæti varamanns í stað Ríkarðs Daða Ólafssonar.

Fyrir hönd ÍSÍ voru mættir Hafsteinn Pálsson 2. varaforseti og Andri Stefánsson framkvæmdastjóri, sem ávarpaði þingið.  

Hægt er að nálgast skýrslu stjórnar hér og þinggerðina hér.

Meðfylgjandi mynd er frá þinginu.