Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Reykjavíkurleikarnir 2023 og ráðstefnan „Íþróttir 2023”

01.02.2023

 

Ráðstefnan „ÍÞRÓTTIR 2023” hófst í dag, 1.febrúar, og stendur yfir í dag og á morgun í Háskólanum í Reykjavík. Að ráðstefnunni standa Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Háskólinn í Reykjavík og RIG – Reykjavík International Games. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, opnaði ráðstefnuna. 

Ráðstefnan verður þrískipt og mun dagurinn í dag fjalla um þjálfun afreksíþróttafólks.  Morgundeginum verður skipt í umfjöllun um íþróttir barna og ungmenna annars vegar og stjórnun íþróttafélaga hins vegar. Fjölmargir spennandi fyrirlestrar verða á ráðstefnunni.  Meðal fyrirlesara verða Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari knattspyrnuliðs Kristianstad í Svíþjóð, Vésteinn Hafsteinsson, fyrrum afreksíþróttamaður í frjálsum íþróttum, þjálfari hjá sænsku Ólympíunefndinni og nýráðinn afreksstjóri ÍSÍ, Else-Marthe Sørlie Lybekk, fyrrum handknattleikskona frá Noregi, og fleiri sérfræðingar.

Dagskrá ráðstefnunnar, upplýsingar um fyrirlesara ásamt öðrum upplýsingum og streymi má finna hér: https://www.rig.is/dagskra2023

Seinni hluti Reykjavíkurleikanna hófst einnig í dag en keppt er í fjölda greina og má finna grófa dagskrá hér, https://www.rig.is/dagskra-2023Þá má einnig finna upplýsingar um lausa miða og streymi.

Á facebook síðu Reykjavíkurleikanna má einnig finna nánari fréttir og upplýsingar um keppnina, https://www.facebook.com/reykjavik.international.games