Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

30.01.2023

Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun allra stiga hefst mánudaginn 6. febrúar næstkomandi.  Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.

Skráning fer fram á Sportabler:   https://www.sportabler.com/shop/isi 

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka.  Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Sportabler þurfa að búa til nýjan aðgang undir„Nýr notandi“.

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-146 & 863-1399 eða á vidar@isi.is 

Dæmi um svör frá nemendum í fjarnámi ÍSÍ þegar þeir voru spurðir út í helstu kosti námsins:

„Faglegt og gott námsefni, þverfagleg nálgun á þjálfun og gott samband inn í íþróttagreinar“

„Gott aðgengi að kennara og vel útskýrt námsefni“

„Lærdómsríkt, skemmtilegt og nytsamlegt“

„Hellings fróðleikur um þjálffræði“

„Vel skipulagt og skýr verkefnaviðmið og leiðsögn“

„Mér fannst það ýta undir gagnrýna hugsun og kenndi mér ýmislegt hagnýtt sem hefur nýst mér í þjálfarastarfinu“

„Góðir kennarar og vel valið efni“

„Kemur með kunnáttu/þætti sem margir íþróttamenn hafa ekki vitneskju um en eru gríðarlega mikilvægir“

„Gott skipulag, gott kennsluefni og kennarinn er fljótur til svars þegar maður þarf hjálp“