Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Fulltrúar Special Olympics til Danmerkur með landsliði KRAFT

03.11.2022

 

HM í kraftlyftingum fer fram í Viborg í Danmörku 14. - 19. nóvember nk. Í tengslum við mótið verður haldið kraftlyftingamót á vegum Alþjóðakraftlyftingasambandsins (IPF) og Special Olympics International. Tveir íslenskir keppendur taka þátt í mótinu,  þau María Sigurjónsdóttir og Jón Ingi Guðfinnsson frá íþróttafélaginu Suðra á Selfossi. Með í för verður Örvar Arnarson, þjálfari þeirra.  Íslensku keppendurnir verða í félagsskap besta kraftlyftingafólks heims þar sem barist er um heimsmeistaratitla.

Í frétt á heimasíðu KRAFT kemur fram að Kraftlyftingasamband Íslands (KRAFT) og Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) hafi gert með sér samstarfssamning í maí síðastliðnum, með það fyrir augum að efla og auka þjónustu við fatlað kraftlyftingafólk. Samstarfsverkefni KRAFT, ÍF og Special Olympics á Íslandi kringum HM í Danmörk er spennandi skref í átt að fleiri framtíðarverkefnum. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskir keppendur taka þátt í þessu móti en Special Olympics samtökin hafa unnið að auknu samstarfi við alþjóðasamtök í ýmsum greinum.

Special Olympics samtökin byggja á keppni jafningja og val keppenda á leika Special Olympics byggir ekki á árangri, heldur góðri mætingu, framförum og góðri félagslegri hegðun.  Það er því mjög áhugavert að tengja þessi tvö mót saman þar sem forsendur til keppni eru mismunandi en metnaður og markmið þau sömu. María og Jón Ingi hafa æft kraftlyftingar hjá íþróttafélaginu Suðra á Selfossi undanfarin ár en þar hefur Örvar Arnarson þjálfari  byggt upp öfluga lyftingadeild. Þau keppa föstudaginn 18. nóvember nk. Alls mæta 10 keppendur til leiks, en þeir koma frá Svíþjóð, Bretlandi og Bandaríkjunum, auk Íslands.

Streymi frá keppninni.

Á myndinni eru María og Jón Ingi með Örvari, þjálfara sínum.  Mynd/KRAFT