Þátttakendur á EYOF 2022 staðfestir
12.07.2022
Það styttist í Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Banská Bystrica í Slóvakíu 24.-30. júlí nk.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur nú staðfest íslenska hópinn sem fer á hátíðina:
Í gær var haldinn stór upplýsingafundur með öllum þátttakendum og aðstandenum. Þátttakendur fengu afhentan ferða- og æfingafatnað frá ÍSÍ og farið var yfir helstu upplýsingar varðandi ferðatilhögun, skipulag og fleira. Frábær mæting var á fundinn eða um 70 manns. Að mörgu er að hyggja þegar farið er í keppnisferð af þessu tagi en fararstjórn verður í höndum þeirra Brynju Guðjónsdóttur aðalfararstjóra og Kristínar Birnu Ólafsdóttur aðstoðarfararstjóra sem báðar eru verkefnastjórar á Afreks- og Ólympíusviði ÍSÍ og búa yfir góðri reynslu af verkefnum sem þessu.