Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Ólympíusamhjálpin styrkir íþróttafólk vegna undirbúnings fyrir París 2024

25.05.2022

 

ÍSÍ hefur gengið frá samningum Ólympíusamhjálparinnar við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafólk þeirra vegna undirbúnings fyrir Ólympíuleikana í París 2024. Um er að ræða styrki vegna sjö einstaklinga frá fjórum sérsamböndum ÍSÍ.

Heildarverðmæti samninga gæti numið allt að 31 m.kr. (miðað við gengi dagsins í dag) en um er að ræða mánaðarlegan styrk fyrir hvern styrkþega vegna kostnaðar við æfingar og keppnir.

Styrkþegar Ólympíusamhjálparinnar vegna Ólympíuleikanna í París 2024 eru:

  • Anton Sveinn McKee / Sundsamband Íslands
  • Guðni Valur Guðnason / Frjálsíþróttasambandi Íslands
  • Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir / Frjálsíþróttasambandi Íslands
  • Guðlaug Edda Hannesdóttir / Þríþrautarsamband Íslands
  • Hilmar Örn Jónsson / Frjálsíþróttasamband Íslands
  • Snæfríður Sól Jórunnardóttir / Sundsamband Íslands
  • Valgarð Reinhardsson / Fimleikasamband Íslands

Um tvær styrkupphæðir er að ræða, en þeir Anton Sveinn McKee og Guðni Valur Guðnason hljóta 1.500 USD á mánuði en aðrir styrkþegar 900 USD á mánuði.

Við ákvörðun styrkupphæðar var m.a. horft til þess árangurs sem þessir aðilar náðu gagnvart Ólympíulágmörkum í undanfara Ólympíuleikanna í Tókýó 2020. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kallaði eftir tillögum frá sérsamböndum ÍSÍ og bárust umsóknir vegna 18 einstaklinga frá níu sérsamböndum. Allir þessir einstaklingar hafa það á stefnu sinni að ná lágmörkum og vinna sér inn keppnisrétt á Ólympíuleikana í París 2024 og hafa hafið stífan og kostnaðarfrekan undirbúning vegna þessa. Að þessu sinni eru það sjö einstaklingar sem hljóta styrk. Styrktímabil hófst þann 1. janúar 2022 og stendur fram yfir leika, nái styrkþegi að tryggja sér þátttökurétt.

Heildarkostnaðaráætlun styrkþega fram að leikum er margföld sú upphæð sem styrkir Ólympíusamhjálparinnar og ÍSÍ nema, en lauslega áætlað má reikna með að árlegur kostnaður á hvern einstakling í fremstu röð í heiminum sé töluvert yfir 10 m.kr.

Til framtíðar er mikilvægt að hlúa enn betur að afreksíþróttafólki með því að gefa því tækifæri á að taka þátt í verðugum verkefnum og styðja við bakið á því með fræðslu og faglegri þekkingu sem og auknu fjármagni.

Með auknu fjárframlagi ríkisins síðustu árin til Afrekssjóðs ÍSÍ og breyttum áherslum í afreksíþróttastarfi sérsambanda og ÍSÍ er reynt að styðja enn betur við umgjörð og möguleika íþróttafólks til að ná árangri á heimsmælikvarða. Sérsambönd ÍSÍ og styrkþegar munu á næstu árum leggja mikið í að vinna sér keppnisrétt á leikana í París, bæði fjármuni sem og ferðalög og tíma.

Á myndum frá undirritun samninga eru Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ ásamt íþróttafólkinu. Sundfólkið Anton Sveinn og Snæfríður Sól voru erlendis en meðfylgjandi er einnig mynd af þeim, sem tekin var á Ólympíuleikunum í Tókýó í fyrrasumar.

Myndir með frétt