Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
24

Ársþing BSÍ

23.05.2022

 

Ársþing Badmintonsambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal fimmtudaginn 19. maí sl. Þingið var vel sótt en 46 manns sátu þingið, þar af 40 þingfulltrúar.

Þingið gekk vel fyrir sig. Endurkjörin til næstu tveggja ára í stjórn sambandsins voru þau Kristján Daníelsson formaður, Guðrún Gunnarsdóttir, Guðbjörg Jóna Guðlaugdóttir, Arnór Tumi Finnsson og Kristinn Ingi Guðjónsson. Nýir inn í stjórn koma Pétur Hemmingsen og Haukur Þórðarson.

Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ og flutti hann ávarp á þinginu.