Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Hólmfríður Dóra í 32. sæti

11.02.2022

 

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir keppti í nótt í risastórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Keppnin hófst kl. 03:00 í nótt að íslenskum tíma og var Hólmfríður Dóra nr. 39 í rásröðinni af 44 keppendum. Hún endaði í 32. sæti á tímanum 1:17,41 mín. en alls luku 42 keppendur keppni. Lara Gut-Behrami frá Sviss sigraði greinina á tímanum 1:13,51 mín., Mirjam Puchner frá Austurríki varð önnur og Michelle Gisin frá Sviss varð þriðja.

Hólmfríður Dóra hefur þá lokið keppni á leikunum en alls voru keppnisgreinar hennar þrjár, þ.e. svig, stórsvig og risastórsvig. Það hefur verið spennandi að fylgjast með hennar þátttöku á leikunum en þetta eru hennar fyrstu Ólympíuleikar.

Myndir/ÍSÍ.

Myndir með frétt