Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Fjöldatakmarkanir verða 200 manns - sóttkví afnumin

11.02.2022

Afléttingar á sóttvarnarreglum hafa verið boðaðar og tekur ný reglugerð gildi á miðnætti. Reglur um sóttkví verða þó afnumdar strax í dag.

Helstu reglur er varða íþróttahreyfinguna verða eftirfarandi: 

  • Fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla úr gildi.
  • Á íþróttaæfingum og í keppnum hjá börnum og fullorðnum innandyra verður heimilt að hafa allt að 200 manns í rými.
  • Sameiginleg áhöld skulu áfram sótthreinsuð á milli hópa og mikilvægt að loftræsting sé í lagi.
  • Almennt gildir 1 metra regla í samfélaginu og skylt að nota grímu þar sem ekki verður hægt að viðhafa 1 metra nálægðartakmörkun.
  • Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin nálægðartakmörkunum og börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin grímuskyldu.
  • Heimilaður fjöldi á sitjandi viðburðum verður 1000 manns í hverju hólfi að því gefnu að allir séu sitjandi, ekki andspænis hver öðrum og að allir beri andlitsgrímu.
  • Reglur um sóttkví og smitgát falla úr gildi. Fólk er ekki lengur skylt til að fara í sóttkví eða smitgát en þó eru aðilar hvattir til þess að viðhafa smitgát og fylgjast vel með einkennum hafi það verið í nánum samskiptum við smitaðan einstakling og fara í PCR sýnatöku ef einkenni fara að gera vart við sig.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar, sundstaðir og skíðasvæði geta nú tekið á móti leyfilegum fjölda miðað við hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi.

Hér er hægt að sjá frétt á vef Stjórnarráðsins
Hér er hægt að sjá reglugerð um takmörkun á samkomum sem tekur gildi 12. febrúar
Hér er hægt að sjá minnisblað sóttvarnalæknis frá 9. febrúar