Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
26

Ráðning verkefnastjóra heilsueflingar eldra fólks

10.02.2022

Á síðastliðnu ári lagði félagsmálaráðuneytið fjármagn til Landssambands eldri borgara (LEB) og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) í sameiginlegt verkefni þessara tveggja samtaka um heilsueflingu eldra fólks. Í kjölfarið réðu LEB og ÍSÍ til sín sinn hvorn starfsmanninn, sem munu starfa sem verkefnastjórar verkefnisins, með aðsetur í höfuðstöðum ÍSÍ. Þetta eru þær Ásgerður Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og íþróttakennari sem er starfsmaður LEB og Margrét Regína Grétarsdóttir íþróttafræðingur sem er starfsmaður ÍSÍ. 

Starf verkefnastjóranna er að skoða hvers konar hreyfing er í boði á landsvísu, hverjar áherslurnar eru á hverjum stað fyrir sig og hvort og þá hvernig megi gera gott enn betra. Fyrsta skrefið er að vera í samskiptum við forsvarsmenn aðildarfélaga LEB og forsvarsmenn íþróttahéraða innan ÍSÍ og vinna að gagnaöflun varðandi þennan málaflokk.

Megin markmið verkefnisins er þó að innleiða með markvissum hætti heilsueflingu til framtíðar sem felur í sér skipulagða þjálfun og aukið heilsulæsi eldra fólks m.t.t. hreyfingar, næringar og annarra þátta sem skipta sköpum fyrir heilsu og líðan. Lögð verður áhersla á námskeið, fræðslu og annan faglegan stuðning til þjálfara og leiðbeinenda eftir því sem við á, og annarra sem koma að heilsueflingu eldra fólks. Áhersla verður lögð á samstarf hlutaðeigandi aðila á hverjum stað, s.s. félög eldri borgara, íþróttafélög, heilsugæsluna og líkamsræktarstöðvar. Markmiðið er þannig að auka lífsgæði eldra fólks með betri líkamlegri og andlegri heilsu. Með þessu er ætlunin að skapa enn betri umgjörð fyrir þennan aldurshóp, fjölga tækifærum til hreyfingar og koma hreyfingu með fjölbreyttum hætti inn í daglegt líf þeirra. 

ÍSÍ býður þær Ásgerði og Margréti velkomnar til starfa og væntir mikils af þeirra starfi í þágu heilsueflingar eldra fólks í landinu.

Mynd:  Frá vinstri, Ásgerður Guðmundsdóttir og Margrét Regína Grétarsdóttir.