Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

Fjöldatakmarkanir fara niður í 50 manns

12.11.2021

Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra um samkomutakmarkanir. Reglugerðin mun gilda 13. nóvember - 8. desember nema annað verði tilgreint. 

Eftirfarandi eru helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna: 

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns og heimilt verður að hafa allt að 50 manns á æfingum og í keppni.
  • Grímuskylda mun gilda þar sem ekki verður hægt að viðhafa 1 metra fjarlægð frá ótengdum aðilum. Sem fyrr þarf ekki að nota grímu við íþróttaiðkun.
  • Börn fædd 2016 og fyrr verða undanþegin grímuskyldu, fjölda- og nálægðartakmörkunum.
  • Heimilt verður að hafa allt að 500 manns í áhorfendasvæðum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er m.a. varðar skráningu, notkun hraðprófa og grímunotkun.
  • Þar sem hraðpróf eru ekki notuð fyrir áhorfendur er heimilt að hafa að hámarki 50 manns í hverju rými svo lengi sem allar reglur um sóttvarnir eru virtar.
  • Óheimilt verður að selja veitingar í hléi. 
  • Gestafjöldi á sund- og baðstöðum og heilsu- og líkamsræktarstöðvum má vera allt að 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi.
  • Skíðasvæðum er heimilt að taka á móti 75% af hámarksfjölda móttökugetu hvers svæðis. 

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem gildir til 8. desember 2021.

Minnisblað sóttvarnalæknis frá 11. nóvember 2021.