Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Auglýst eftir umsóknum um styrki

23.09.2021

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) auglýsa eftir umsóknum um styrki frá sérsamböndum, íþróttahéruðum og íþrótta- og ungmennafélögum landsins.

Um er að ræða styrk að upphæð 250.000 krónur til að standa fyrir verkefni sem hvetur börn og ungmenni af erlendum uppruna og fjölskyldur þeirra til þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi. Fjórir styrkir eru í boði. Til þess að hljóta styrk þurfa félög að skila áætlun um hvernig þau hyggjast nýta fjármagnið. Tímarammi verkefnisins er veturinn 2021 – 2022. Eftir að verkefnunum lýkur munu ÍSÍ og UMFÍ taka saman gögn styrkþega og deila reynslunni til annarra íþrótta- og ungmennafélaga. Með þekkingaröflun og miðlun upplýsinga gerum við gott starf enn betra. Þetta er í annað sinn sem ÍSÍ og UMFÍ útdeila styrkjum til aukinnar þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna.

Umsóknarfrestur er til 22. október. Smelltu hér til þess að sækja um.

Vertu með bæklingar

ÍSÍ og UMFÍ minna á bæklinginn Vertu með sem kom út haustið 2018. Markhópur bæklingsins eru foreldrar barna og ungmenna af erlendum uppruna og markmiðið með útgáfu hans er að vekja athygli á mikilvægi þess að börn taki þátt í skipulögðu íþróttastarfi. Í bæklingnum eru hagnýtar upplýsingar um starfsemi íþrótta- og ungmennafélaga landsins.

  • Upplýsingar um æfingagjöld íþróttafélaga.
  • Frístundastyrki
  • Mikilvægi þátttöku foreldra og kosti þess að hreyfa sig í skipulögðu starfi.

Bæklingurinn er til á níu tungumálum, þ.e. á íslensku, ensku, pólsku, taílensku, litháísku, filippseysku, arabísku, víetnömsku og spænsku (væntanlegur).

Smelltu hér til þess að skoða bæklinginn.