Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Ólympíuhlaup ÍSÍ 2021 sett á Reyðarfirði

10.09.2021

Ólympíuhlaup ÍSÍ 2021 var sett á Reyðarfirði í gær í blíðskapar veðri. Blossi lukkudýr ÍSÍ sá um upphitun fyrir hlaupið, en það er árviss viðburður og vekur alltaf lukku. Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastýra Grunnskólans á Reyðarfirði hvatti nemendur í upphafi hlaups, bauð gesti velkomna í skólann og þakkaði ÍSÍ fyrir að velja skólann þeirra til að opna viðburðinn formlega. Guðlaug tók jafnframt við gjöf frá ÍSÍ til skólans sem innihélt bolta, sippu- og snúsnúbönd. Nemendur í Grunnskóla Reyðarfjarðar eru rétt rúmlega 200 og þátttaka í hlaupinu árviss viðburður. Að hlaupinu loknu gátu krakkarnir gætt sér á léttmjólk í boði Mjólkursamsölunnar.

Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur grunnskóla á Íslandi til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Nemendur geta valið á milli þriggja vegalengda í hlaupinu, þ.e. 2,5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri, hversu margir tóku þátt og hversu langt var hlaupið.

Að loknu hlaupinu á Reyðarfirði fengu nemendur í 7.-9. bekk fræðslu um orkudrykki og fæðubótarefni frá Birgi Sverrissyni framkvæmdastjóra Lyfjaeftirlits Íslands. 

Myndir frá deginum má sjá hér á myndasíðu ÍSÍ.

Hlaupið er styrkt af verkefninu Íþróttavika Evrópu og verða þrír þátttökuskólar, sem ljúka hlaupinu fyrir 10. október og skila inn upplýsingum til ÍSÍ, dregnir út úr potti. Hver þessara þriggja skóla fær 100.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu. Þeir skólar sem ljúka hlaupinu eftir 10. október geta eftir sem áður skilað inn upplýsingum og fengið send viðurkenningaskjöl, en gert er ráð fyrir að allir skólar hafi lokið hlaupinu fyrir árslok 2021.

ÍSÍ þakkar nemendum fyrir þátttökuna og starfsliði skólans fyrir þeirra framlag og jákvæðni. Jafnframt hvetur ÍSÍ þá skóla sem eiga eftir að hlaupa til að taka þátt.

Myndir með frétt