Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Leikir fyrir unnendur Ólympíuleika

15.07.2021

Í tengslum við Ólympíuleikana í Tókýó sem hefjast 23. júlí næstkomandi hafa verið gefnir út nokkrir skemmtilegir leikir sem allir unnendur Ólympíuleikanna geta nálgast og spilað. Um er að ræða svokallað FanZone þar sem er meðal annars að finna spurningaleik (Trivia), Fantasy þar sem viðkomandi getur sett saman draumaliðið sitt og Bracket. 

Hér er hægt að smella til að komast inn á ensku útgáfuna af FanZone en einnig eru svæði fyrir frönsku-, spænsku-, kínversku-, og japönskumælandi áhangendur.

ÍSÍ hvetur alla áhugasama til að skoða leikina sem eru í boði og auka þannig á upplifunina af Ólympíuleikunum. Hver leikur inniheldur vinninga, eins og sjá má betur á svæðinu (FanZone).