Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Ný reglugerð tekur gildi þann 25. maí

21.05.2021

Heilbrigðisráðherra hefur nú gefið út nýja reglugerð sem tekur gildi 25. maí og gildir til og með 16. júní. Með henni eru gerðar verulegar tilslakanir á íþróttastarfi. Helstu breytingar í reglugerð heilbrigðisráðherra sem snerta íþróttastarfið eru eftirfarandi:

  • Heimilt verður að hafa að hámarki 150 þátttakendur í hverju rými á æfingum og í keppni.
  • Heimilt verður að hafa að hámarki 300 manns í hverju rými á áhorfendasvæðum að uppfylltum skilyrðum skv. 3. grein reglugerðar heilbrigðisráðherra og að hámarki þrjú rými fyrir áhorfendur í hverri byggingu. Skilyrðin eru eftirfarandi:
    • Tryggt sé að fjarlægð milli ótengdra gesta sé a.m.k. 1 metri.
    • Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum.
    • Allir gestir séu skráðir í númeruð sæti, a.m.k. nafn, kennitala og símanúmer. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.
    • Allir gestir noti andlitsgrímu nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru.
    • Komið verði eins og kostur er í veg fyrir frekari hópamyndun fyrir viðburð, í hléi og eftir viðburð.
    • Skipuleggjendum viðburða er skylt að tryggja þegar gestir eru ekki í sætum, svo sem fyrir og eftir viðburð og í hléi, að ekki komi fleiri saman en 150 manns og að virt sé 2 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra aðila.
    • Umgengni í hverju hólfi skal vera í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis þar að lútandi svo koma megi í veg fyrir blöndun hólfa.

Sé eitthvert ofangreindra skilyrða ekki uppfyllt er hámarksfjöldi á viðburði 150 manns í hverju rými. Gæta þarf að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.

  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaðir mega opna fyrir leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Í hverju rými í heilsu- og líkamsræktarstöðvum skulu ekki vera fleiri en 150 manns og 2 metra nálægðarmörk.

Sjá frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra, sem gildir til 16. júní, 2021.