Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Hestamannafélagið Léttir Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

16.02.2021

Hestamannafélagið Léttir á Akureyri fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ föstudaginn 12. febrúar síðastliðinn á uppskeruhátíð barna og unglinga í reiðhöllinni. Félagið hafði unnið lengi að þessari viðurkenningu og uppfyllti nú öll skilyrði Fyrirmyndarfélaga.

Það var Þuríður Steindórsdóttir stjórnarmaður félagsins sem tók við viðurkenningunni úr hendi Viðars Sigurjónssonar skrifstofustjóra ÍSÍ á Akureyri.

Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og Fyrirmyndarhérað ÍSÍ eru gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snúa að íþróttastarfi. Með því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf geta íþróttafélög, -deildir eða -héruð sótt um viðurkenningu til ÍSÍ miðað við þær gæðakröfur sem ÍSÍ gerir. Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu á því frá ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag ÍSÍ, Fyrirmyndardeild ÍSÍ eða Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. ÍSÍ hvetur íþróttafélög, -deildir og -héruð til að sækja um þessa viðurkenningu til ÍSÍ.

Umsjón með verkefninu hefur Viðar Sigurjónsson (vidar@isi.is), skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.

Lesa má meira um Fyrirmyndarfélag ÍSÍ hér.

Lesa má meira um Fyrirmyndarhérað ÍSÍ hér. 

Myndir með frétt