Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

23

Smáforrit Lífshlaupsins einfaldar skráningar á hreyfingu

25.01.2021

Skráning í Lífshlaupið 2021 er hafin á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is.

Nú er orðið einfaldara að skrá hreyfingu sína á meðan á Lífshlaupinu stendur því útbúið hefur verið smáforrit Lífshlaupsins. Í smáforritinu er hægt að skrá og sjá alla hreyfingu viku aftur í tímann. Þar er einnig hægt að lesa hreyfingu beint úr Strava. Það er þó rétt að benda á að það þarf að fara á vefsíðu Lífshlaupsins til þess að stofna aðgang og til þess að stofna lið, en eftir að það er búið er hægt að skrá sig inn í gegnum smáforritið og skrá alla hreyfingu þar.

Smáforritið finnst bæði í App Store (iOS) og í Play Store (Android) undir heitinu „Lífshlaupið“.

Um Lífshlaupið
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.


Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:
• Vinnustaðakeppni frá 3. febrúar – 23. febrúar, fyrir 16 ára og eldri.
• Framhaldsskólakeppni frá 3. febrúar – 16. febrúar, fyrir 16 ára og eldri. 
• Grunnskólakeppni frá 3. febrúar– 16. febrúar, fyrir 15 ára og yngri.
• Einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið.

Eins og ávallt hvetjur ÍSÍ alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum eða í skólanum.

Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finna hér og undir viðeigandi keppni vinstra megin. Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni.
 
Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ á hronn@isi.is eða Kristín Birna, verkefnastjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á kristino@isi.is. Einnig er hægt að hringja í síma 514-4000 eða senda fyrirspurnir á netfangið lifshlaupid@isi.is.